Leita í fréttum mbl.is

Ríkismaraþon

Ég er nú barasta að velta því fyrir mér, í beinu framhaldi af síðustu færslu, hvort Glitnismaraþonin í Reykjavík og Osló verði þá Ríkismaraþon á næsta ári. Eða er ríkið kannski bara að leggja af stað í sitt eigið maraþon, sem ekki sér fyrir endann á? Eða er þetta bara spretthlaup, þannig að eftir stutta stund verði hægt að varpa mæðinni og þurrka svitann? Eða er þetta kannski alls ekki spurning um spretthörku eða úthald, heldur um nýja uppskrift að hamingju, sem felst í því að komast yfir eignir, kreista úr þeim safann og leyfa ríkinu að sjá um afganginn, svo að hægt sé að byggja hann upp að nýju til að selja öðrum hann fyrir lítið, til að þeir geti aftur kreist safann og leyft ríkinu aftur að sjá um afganginn, svo að hægt sé............?

Þegar ég var í menntaskóla (fyrir ákaflega örfáum árum) var sett þar upp skemmtilegt leikrit, sem ég man ekki lengur hvað hét. Þar í var skemmtilegt lag og skemmtilegur texti, sem ég held að ég muni enn brot úr - eitthvað á þessa leið:

Nú skal gera góða veislu,
efla sam- og einkaneyslu,
eta og drekka eins og hver torgar,
því að ríkið brúsann borgar.

Ergo: Betlið, eyðið svíkið!
Allan kostnað greiðir ríkið!

Ég veit ekkert af hverju þetta rifjaðist upp núna. En ef einhver man eftir þessum texta og veit hver er höfundur hans, þætti mér gaman að frétta af því.


mbl.is Ríkið eignast 75% í Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband