Leita í fréttum mbl.is

Fyrirlestur um fjallvegahlaup

Ég var á Akureyri um helgina. Átti þrjú erindi þangað, hvert öðru skemmtilegra og gagnlegra. Eitt þeirra var að halda fyrirlestur um fjallvegahlaupin mín í boði hlaupahópsins Eyrarskokks. Þarna mætti dálítill hópur af áhugasömu og jákvæðu fólki - og úr varð virkilega skemmtileg stund að mér fannst, auk þess sem boðið var upp á prýðisgóða súpu. Í þessu spjalli kynnti ég m.a. lausleg áform mín um fjallvegahlaup á sumri komanda. Býst við að leggja aðaláherslu á Vestfirði þetta árið. Hef ekki tíma til að setja áætlunina inn hér og nú, en stefni að því að birta hana síðar í vikunni - þegar um hægist.

Eins og allir vita Smile er ég búinn að skokka yfir 10 af þeim 50 fjallvegum sem ég ætla að spreyta mig á á næstu árum. Þessar hlaupnu slóðir má greina óljóst á myndinni hér að neðan, sem einmitt er tekinn úr fyrirlestri helgarinnar. (Já, vel á minnst, ég er auðvitað alveg til í að halda fleiri svona fjallvegahlaupafyrirlestra fyrir áhugasamt og jákvætt fólk). Smile

Fjallvegir 07-08
Fjallvegaverkefni SG: Hlaupnir fjallvegir 2007 og 2008


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Egilsson

Stebbi

Eru margir sem mæti í þessi hlaup'

Jónas

Jónas Egilsson, 17.2.2009 kl. 09:35

2 Smámynd: Stefán Gíslason

Nei, blessaður vertu, þetta hafa verið svona 0-4, vinir og kunningjar aðallega. Hins vegar býst ég við fjölgun svona smátt og smátt...

Stefán Gíslason, 17.2.2009 kl. 11:51

3 Smámynd: Fríða

Enn og aftur, takk fyrir frábæra skemmtun :)

Fríða, 18.2.2009 kl. 19:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband