Leita í fréttum mbl.is

Viðskiptatækifæri fyrir Íslandspóst og Nepal?

Við fyrstu sýn virðist mér fréttin um komu Ollie Rehn gefa fyrirheit um viðskiptatækifæri fyrir íslensk fyrirtæki í fjarskiptum og skyldum greinum. Ég sé nefnilega ekki betur en Evrópusambandið sé komið mun skemmra í því en við að nota nútímatækni á borð við póstsendingar, svo ekki sé nú talað um tölvupóst. Því virðist mér einsýnt að Íslandspóstur bjóði Ollie þjónustu sína við að koma pappírum á milli landa. Jafnframt gæti Nepal í Borgarnesi, eða eitthvert annað fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í hugbúnaðargerð og tölvusamskiptum, boðið honum snjallar lausnir sem gera það mögulegt að senda gögn með tölvupósti heimshorna á milli.

Eða tók Ollie kannski of djúpt í árinni þegar hann sagði að megintilgangurinn með heimsókn sinni hafi verið að afhenda stjórnvöldum spurningalista?


mbl.is Olli Rehn afhendir spurningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er það sem ESB snýst um, að hafa sem flest fólk í að færa pappír á milli staða. Gamla Sovét!

Örn Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 8.9.2009 kl. 18:39

2 identicon

Ég hjó einmitt eftir þessu sama.  Þarna er kannski kominn einn stór þáttur í því hvernig ESB aðild getur minnkað atvinnuleysið mikið.  Manni skilst að ESB fylgi mikil skriffinnska og þá hlýtur að þurfa að fylla margar stöður stjóra sem sendast landa á milli með spurningar og svör, nú eða skýrslur.

Eggert Jóhannesson (IP-tala skráð) 8.9.2009 kl. 18:39

3 identicon

Ísland mun ALDREI ganga í þetta ESB. Þessi Olli Rehn hefði betur sparað sér þessa snúninga og haldið sig heima hjá sér.

Ísland aldrei að eílífu í þetta "E"vrópu "S"ovjét "B"andalag

Tryggvi Helgason (IP-tala skráð) 8.9.2009 kl. 19:15

4 identicon

Ha,ha,ha!! Askoti var þetta gott hjá þér Tryggvi. Evrópu Sovét Bandalag! Eins og talað úr mínu hjarta. Hittir naglann á höfuðið.

H.H. (IP-tala skráð) 8.9.2009 kl. 19:28

5 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Góður punktur Stefán. Spái því að Össur láti taka mynd af sér sveittum að svara öllum þessum spurningum...

Guðmundur St Ragnarsson, 8.9.2009 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband