Leita í fréttum mbl.is

650902-2380 - 315-26-2380

Tölurnar í fyrirsögninni eru kennitala og reikningsnúmer FSMA, félags aðstandenda og einstaklinga með SMA-sjúkdóminn (Spinal Muscular Atrophy) á Íslandi, en eins og fram hefur komið ætlum við Ingimundur Grétarsson að hlaupa Rómarmaraþonið á sunnudaginn til styrktar félaginu. Þeir sem vilja styðja við rannsóknir á SMA og hvetja okkur til dáða í leiðinni, geta sem sagt lagt fjárhæð að eigin vali inn á reikninginn.

En svo er líka hægt að gera veðmál úr þessu. Hvernig væri t.d. að heita á okkur hvorn í sínu lagi, og lofa t.d. 100 krónum fyrir hverja mínútu sem viðkomandi er undir fjórum klukkustundum? Besti maraþontíminn minn til þessa er 3:36 klst, þ.e. 24 mín. undir fjórum tímum, sem samsvarar í þessu tilfelli 2.400 krónum. Ingimundur á best 3:33 klst., sem gera þá 2.700 krónur með sama útreikningi. Auðvitað mætti líka ákveða einhverja hámarksupphæð til að kostnaðurinn fari ekki úr böndunum ef við skyldum bæta okkur óskaplega. Smile Þeir sem vilja fara þessa leið geta t.d. sent mér tölvupóst með áheitinu. Ég mun þá senda tölurnar um hæl þegar þær liggja fyrir - og þá er ekkert eftir nema leggja inn hjá FSMA.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband