Leita í fréttum mbl.is

1.000 kílómetra skór

Reyndasta hlaupaskóparið mitt náði þeim áfanga í gær að hlaupa yfir 1.000 kílómetra markið. Samt er varla hægt að greina neitt slit á skósólunum! Já, það voru miklar framfarir þegar Asics Kayano tók við af roðskóm og sauðskinnsskóm á öldinni sem leið. Annars er almennt talið að hlaupaskór hafi ekki gott af meiru en svo sem 600-800 km, því að þá fari dempunin í þeim að daprast. Vill til að skóhljóð mitt er létt.

Vegna þeirra sem furða sig á að nokkur skuli halda skýrslu yfir hlaupna kílómetra skópara, er rétt að taka fram að ég er í fyrsta lagi nörd, í öðru lagi er sérstakt kerfi fyrir þess háttar skráningu hluti af hugbúnaði hlaupadagbókarinnar og í þriðja lagi skiptir þetta pínulitlu máli fyrir heilsu fótanna sem í skónum eru. Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða

Mér verður illt í mjöðminni bara af tilhugsuninni um að hlaupa í Kayano.  En það er nú svo misjafnt hvað hentar fólki.  Ég er nokkuð viss um að GT skórnir mínir eru búnir að fara hátt í 1000 kílómetra, og það sést varla á sólunum.  Þannig að nú er ég búin að útvega mér annað þannig par og hef meira að segja látið ráðleggja mér að nota þá í Laugaveginn vegna þess að þeir hleypa vatni bæði inn og út.  Það liggur við að manni finnist maður vera í sandölum með þá á fótunum.  Og já, ég var í morgun að lesa frásögn þína af Laugaveginum með mikilli athygli, nú snýst allt um það hjá mér.  Púff...

Fríða, 9.6.2008 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband