Leita í fréttum mbl.is

Markmiðið náðist ekki ;-(

Ég náði ekki því markmiði mínu í 10 km hlaupi Reykjavíkurmaraþonsins að hlaupa á betri tíma en 43:27 mín. Crying 

Tíminn minn í morgun var bara 44:04 mín, sem dugði í 84. sæti af 2.929 keppendum samkvæmt bráðabirgðaúrslitum á www.marathon.is. Held ég hafi verið í 6. sæti karla á sextugsaldri. Þetta eru náttúrulega gríðarleg vonbrigði og ljóst að ég verð að taka næstu daga í að fara yfir hvað fór úrskeiðis. Jæja, ég veit það svo sem alveg. Í fyrsta lagi fór ekkert úrskeiðis, ég leyfði mér bara að njóta hlaupsins og leit aldrei á klukkuna fyrr en á síðustu 100 metrunum. Og ég er náttúrulega bara glaður að geta enn hlaupið þessa vegalengd á ekki lengri tíma. Í öðru lagi hef ég einfaldlega ekki hlaupið nógu mikið síðari hluta sumars.

Þorkell frumburður var auðvitað langt á undan mér eins og venjulega. Hann hljóp á 42:47 mín og varð í 63. sæti af þessum sömu 2.929 keppendum. Hann hélt sem sagt uppi heiðri fjölskyldunnar.

Þetta var 15. 10 km keppnishlaupið mitt - og reyndar 5. besti tíminn frá upphafi, þrátt fyrir allt. Besta tímanum náði ég á innanfélagsmóti ÍR á Melavellinum sunnudaginn 6. október 1974, 36:54,8 mín. Eins og ég hef áður sagt hefur gengið illa að toppa það upp á síðkastið. Næstbesti tíminn náðist í Ármannshlaupinu 25. júlí 1996, 41:00 mín. Síðan koma 43:14 mín. í Ármannshlaupinu 29. júlí 2004, 43:42 mín í Brúarhlaupinu á Selfossi 3. september 2005 og svo 44:04 mín í dag.

Margt hefur breyst í hlaupunum síðan árið 1974. Það ár náðu samtals 11 Íslendingar þeim áfanga að hlaupa 10 km í keppni - og höfðu aldrei verið fleiri! (Ég var með 6. besta tímann). Nú gæti ég trúað að þeir væru um 2.000. Fjöldi hlaupara í morgun gefur einhverja vísbendingu, en eins og fram hefur komið voru þeir u.þ.b. 2.929. Þar af voru auðvitað allmargir útlendingar, en á móti kemur að margir Íslendingar hlaupa þessa vegalend annars staðar en í Reykjavíkurmaraþoni. Mér sýnist þannig talan 2.000 hljóta að vera nærri lagi. Þetta finnst mér skemmtileg þróun!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða

Þú ert nú eitthvað verri :)  Þetta er ekki beint lélegur tími!!!  Brunasár (ör?) og allt.  Kannski þú náir markmiðinu þegar þú hættir að tuða um þennan sextugsaldur þinn.  :P  Til hamingju með þennan flotta tíma og til hamingju með frumburðinn :)

Fríða, 24.8.2008 kl. 11:06

2 Smámynd: Stefán Gíslason

Takk Fríða!

Stefán Gíslason, 24.8.2008 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband