Leita í fréttum mbl.is

Góð hugmynd hjá Davíði

Mér líst afar vel á hugmynd Davíðs Oddsonar um þjóðstjórn. Eins og staðan er í efnahagsmálum er þó naumast hægt að ætlast til að slík stjórn verði í aðstöðu til að taka fullnaðarákvarðanir um þær ráðstafanir sem nauðsynlegar kunna að verða. Þess vegna er afar brýnt að þjóðstjórnin njóti ráðgjafar færustu sérfræðinga á sviði efnahagsmála. Í því sambandi liggur beinast við að stjórnin leiti eftir ráðgjöf Seðlabankans. Með tilliti til stöðu efnahagsmála myndi þar verða um svokallaða bindandi ráðgjöf að ræða. Þetta fyrirkomulag myndi létta mjög álagi af Alþingi, enda Alþingismenn í afar erfiðri aðstöðu til að taka afstöðu til þeirra margbrotnu viðfangsefna sem stjórnvöld þurfa að fást við, sérstaklega þegar tekið er tillit til þeirra miklu áhrifa sem ófyrirsjáanlegir atburðir í alþjóðlegu fjármálalífi geta haft á íslenskt viðskiptaumhverfi. Alþingi myndi engu að síður gegna afar mikilvægu hlutverki við að samþykkja þær ráðstafanir sem þjóðstjórnin hefði þegar tekið ákvarðanir um, að fenginni ráðgjöf.
mbl.is Seðlabankastjóri viðrar hugmynd um þjóðstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dofri Hermannsson

Ertu ekki að grínast Stebbi? Seðlabankastjóri er aðalhöfundurinn að öllu þessu klúðri, hefur takmarkað vit á því sem hann er að gera og það litla vit er iðulega ofurliði borið af heift í garð ýmissa aðila.

Dofri Hermannsson, 2.10.2008 kl. 13:09

2 identicon

Helv... hann Davíð á ekki þessa hugmynd. Þetta hefur komið uppá borð fleiri stjórnmálamanna síðustu mánuði/síðastliðið ár.

Það þarf að fara að höggva á hendurnar á feita bolanum og koma honum burt úr öllu sem snertir þjóðmál eða stjórnmál, helv.. hvað hann er það allra versta sem hefur komið fyrir íslenska þjóð!!

kappinn (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 15:48

3 identicon

Maðurinn er stríðsglæpamaður. Hann var einn af þeim "viljugu"
sem hófu Íraksstríðið sem hefur orsakað dauða meira 1 milljóna manna
og hrakið 5 miljónir á flótta. Hann á að sitja í fangelsi!

Ragnar (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 18:58

4 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Davíð er farið að förlast og ætti að hvíla sig dálítið.

Jón Ingi Cæsarsson, 2.10.2008 kl. 21:33

5 Smámynd: Stefán Gíslason

Auðvitað er ég að grínast! Samt er þetta sko alls ekkert fyndið! Það er full þörf á að Seðlabankanum sé stjórnað af mönnum sem hafa sérfræðiþekkingu á því sviði. Það er einfaldlega alveg ótrúlegt að þessi mikilvæga stofnun sé ENNÞÁ(!) 2008(!) notuð sem hressingarhæli fyrir aflagða stjórnmálamenn! Til hvers var þá líka þetta eftirlaunafrumvarp!?

Ég dáðist að Þorgerði Katrínu og Björgvin Sigurðssyni þegar ég horfði á sjónvarpsfréttirnar í kvöld. Þau töluðu skýrt. Davíð fór alveg með það með þessu þjóðstjórnarkjaftæði. "Svona gerir maður ekki", a.m.k. ekki ef maður er Seðlabankastjóri. Nóg var nú samt. Ég er ekki vanur að tjá mig mikið um pólitík, aðra en umhverfispóltík, en nú er nóg komið. Davíð verður að draga sig í hlé. Við verðum að fá færa fagmenn til að stjórna Seðlabankanum! Og það myndi ekkert gera til þótt einhver þeirra væri kvenkyns! Tími Davíðs Oddssonar er liðinn!

PS: Ég hélt kannski að þetta með "bindandi ráðgjöf" væri nóg til að enginn myndi misskilja færsluna.

Stefán Gíslason, 2.10.2008 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband