Leita í fréttum mbl.is

Fjallvegahlaupaáætlun 2009

Eins og alþjóð veit hleyp ég yfir nokkra fjallvegi á sumri hverju, mér til skemmtunar og yndisauka. Ég geri ráð fyrir að allir hafi beðið í ofvæni eftir því að ég opinberaði áform mín um fjallvegahlaup ársins 2009, en það hefur ekki komist í verk fyrr en nú. Fjallvegahlaupaáætlun ársins lítur sem sagt út eins og hér segir, með fyrirvara um smáar og stórar breytingar:

  • Maí:  Svínaskarð (úr Mosfellsbæ í Kjós) (endanleg dagsetning óákveðin)
  • Júní:  Tillögur vel þegnar (kannski Vatnsnesfjall)?
  • Sunnud.19. júlí:  Vesturgatan (almenningshlaup á Vestfjörðum)
  • Þriðjud. 21. júlí:  Þingmannaheiði (milli Skálmarfjarðar og Vatnsfjarðar)
  • Fimmtud. 23. júlí:  Miðvörðuheiði (frá Haga á Barðaströnd til Tálknafjarðar)
  • Föstud. 24. júlí:  Selárdalsheiði (frá Tálknafirði til Selárdals í Arnarfirði)
  • Ágúst:  Tillögur vel þegnar

Eins og sjá má á þessari upptalningu mun sumarið að öllum líkindum verða helgað Vestfjörðum öðrum landshlutum fremur. Gaman væri að fá félagsskap á þessum ferðalögum. Þeir sem slást í för með mér gera það þó á eigin ábyrgð

Allar nánari upplýsingar um fjallvegahlaupaverkefnið mitt er að finna á síðunni www.fjallvegahlaup.is, sem er reyndar afar frumstæð enn sem komið er. Eins og þar kemur fram hef ég lagt 10 fjallvegi að baki og á 40 eftir óhlaupna.

Júní 010web
Skóþvengir bundnir á Ólafsfirði við upphaf fyrsta fjallvega-
hlaups síðasta árs. (Ljósm.: Björk)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hvernig nennir þú þessu ? En ég takk ofan fyrir þér, vildi óska að ég hefði þennan kraft. Sjálfur er ég svo latur að ég bókstaflega nenni varla að draga andann.:)

Finnur Bárðarson, 22.2.2009 kl. 18:20

2 identicon

Sæll Stefán!

Langar til að benda þér á skemmtilega leið úr því þú verður á Vestfjörðum.Þetta er leiðin yfir Fossheiði,það er úr Arnarfirði  yfir á Barðaströnd.Farið er upp frá bænum Fossi í Arnarf,fylgt er gömlum upphlöðnum reiðvegi(gamla póstleiðin)og komið niður hjá bænum Tungumúla á Barðaströnd.

Bestu kveðjur Védís Th.

Védís Thoroddsen (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 15:53

3 Smámynd: Stefán Gíslason

Takk fyrir þetta Védís, ég ætla að skoða þennan valkost gaumgæfilega. Já, og takk fyrir síðast, langt um liðið, 14 ár í vor.

Stefán Gíslason, 23.2.2009 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband