Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju Strandamenn!

logoNú er rúmur klukkutími síðan allir Strandamennirnir voru komnir í mark í Vasagöngunni, en gangan hófst kl. 8 í morgun að staðartíma í Sälen. Eins og vænta mátti var Birkir í Tröllatungu þeirra fremstur, en árangurinn var annars sem hér segir, (svona rétt til að svala tölfræðiáhuga blogglesenda):

Birkir Stefánsson: 1876. sæti, 05:47:13 klst. (var á 6:53:30 í fyrra)!
Ragnar Bragason: 3448. sæti, 06:29:33 klst. (var ekki með í fyrra)
Rósmundur Númason: 6044. sæti, 07:34:11 klst. (var á 8:23:44 í fyrra)!

Alls voru keppendur í göngunni eitthvað um 15.000, þannig að Strandamennirnir voru allir framarlega í hópnum. Framfarirnar milli ára eru líka gríðarlegar, en líklega voru aðstæður heldur hagstæðari nú en í fyrra.

Ég er afar stoltur af þessum fyrrum sveitungum mínum og óska þeim til hamingju með af hafa lokið þessari þolraun með svo góðum árangri! Birkir og Ragnar fylgdu mér báðir yfir Gaflfellsheiðina sl. haust, þannig að ég veit nokkuð hvað í þeim býr. Þetta eru Strandamenn eins og Strandamenn eiga að vera - allir þrír!

Gaflfellsh 018web
Ragnar og Birkir við leitarmannakofann á Hvanneyrum syðst á Gaflfellsheiði sl. haust.


mbl.is Strandamenn í Vasa-göngu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða

oooííhh!  (þetta er svona upphrópun með aðdáun í rómnum)  Ég tek sko undir með þér Stefán, til hamingju strákar :)  Og takk fyrir síðast Birkir og Ragnar, ég geri ráð fyrir að þið sjáið þetta :)

Fríða, 1.3.2009 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband