Leita í fréttum mbl.is

Svínaskarð eftir 12 daga

Nú styttist í fyrsta fjallvegahlaup sumarsins. Á uppstigningardag, fimmtudaginn 21. maí nk., ætla ég sem sagt að hlaupa í góðum félagsskap yfir Svínaskarð frá Esjumelum, upp með Leirvogsá að norðanverðu, og svo til norðurs milli Móskarðshnúka og Skálafells, en þar er sem sagt sjálft skarðið. Í lokin liggur leiðin niður í Svínadal og niður á veginn inn Kjósina, með endapunktinn skammt frá Vindáshlíð. Að öllu forfallalausu verður lagt í hann af Esjumelum umræddan dag kl. 14.00. Eftir því sem ég kemst næst eru þetta um 18 km, og hækkunin er svo sem 400 m.

Aðalleiðin frá Reykjavík vestur og norðurum lá um Svínaskarð, allt þar til bílvegur var lagður með ströndinni vestan við Esjuna um 1930. Enn er jeppafær slóði um skarðið, sæmilega greiðfær syðst, en býsna grófur og brattur þegar halla fer niður í Kjósina að norðanverðu. Geri ráð fyrir að enn séu nokkrar fannir í skarðinu. Þigg með þökkum hvers konar fróðleik um málið frá þeim sem til þekkja.

Örlítið meiri upplýsingar um leiðina er að finna á www.fjallvegahlaup.is.

Á þessari stundu veit ég um þrjá sem hafa fullan hug á að slást í för með mér á þessari skemmtiför um Svínaskarð. Öllum er velkomið að bætast í hópinn - á eigin ábyrgð. Gaman væri samt að vita af væntanlegum ferðafélögum fyrirfram. Þeir sem hafa áhuga á málinu geta t.d. sent mér tölvupóst á netfangið stefan[hja]environice.is.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband