Leita í fréttum mbl.is

Hvanneyrarhringurinn þriðja sinni

Við Ingimundur hlupum Hvanneyrarhringinn í morgun, réttsælis eins og á síðustu helgi. Það er augljóslega miklu betra! Smile Vorum rétt rúma 3 tíma á leiðinni, 3:09 minnir mig. Héraðið skartaði sínu fegursta, alhvít jörð, hægviðri og nánast heiðskírt, frostið kannski svona 4 gráður. Héla á stráum. Og Skessuhornið óendanlega hvítt í sólskininu. Á svona morgnum er maður virkilega minntur á hvílík forréttindi það eru að búa í svona landi og eiga aðgang að svona náttúru og geta notað hana að vild til að rækta líkama og sál. Þessi stærsta líkamsræktarstöð í heimi, sem um leið er glæsilegasta meðferðarstöðin fyrir flest sem hrjáir andann, er samt svo stórlega vanmetin. Woundering

Hvet alla til að drífa sig út, upplifa landið og breytast í skáld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk, takk, takk.

Eyddi fyrri hluta dagsins einmitt úti við. Fór í Botnsdalinn... með dóttur minni og nýju myndavélinni... og líka Gumma ;)  Frábær dagur í óendanlega fallegu umhverfi. Gaman að vera með myndavélina, velta fyrir sér formum, mótívum, nær og fjærumhverfi, litum, birtu, skuggum og svo framvegis. Og ég er sammála þér, lækningarmáttur kyrrðar, náttúrufegurðar og hreins lofts er óútskýranlegur og ákaflega skjótvirkjur! Bestu kveðjur til þín!

Ps. Ætla nú kannski ekki að koma daglega með athugasemdir, þrátt fyrir þessa ofvirkni núna ;)

Arnheiður (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 21:05

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Velkominn á Moggabloggið, Stefán. Ég hlakka til að lesa bloggið þitt hér sem annars staðar... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 4.3.2008 kl. 16:55

3 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Velkominn í bloggheima Stefán.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 4.3.2008 kl. 18:42

4 identicon

Vá, komin mynd...þá verð ég eiginlega að fá þig á myndabloggvinalistann minn...

Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 19:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband