Leita í fréttum mbl.is

Ísinn brast

Ísinn brast eða brotnaði. Hann hrundi ekki. Það var bara bankakerfið sem hrundi. Reyndar getur ís alveg hrunið líka, en þá helst ofan af þökum. Þannig hefði ís af ráðhúsþakinu getað hrunið ofan á hestana, svona fræðilega séð. En vonandi gengur vel að ná hestunum upp. Þetta er ekki þægilegt bað!

(Þessi færsla mín flokkast undir málfarsnöldur).

PS (kl. 16): Það er búið að laga fyrirsögnina á mbl.is og setja „brotnaði“ í stað „hrundi“. Gott mál. Það er reyndar afar vandasamt að halda úti eins öflugum og fljótum vefmiðli og mbl.is. Fréttir á svoleiðis miðlum verða fljótt úreltar ef menn liggja lengi yfir prófarkalestri. Ég hef fullan skilning á því. Takk bara fyrir frábæran vef!!!


mbl.is Ís brotnaði undan hestum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg vissi ég að einhver kæmi með efnahagsröfl

Joseph (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 15:06

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hárrétt Stefán.

Haraldur Bjarnason, 3.2.2009 kl. 15:07

3 identicon

Stefán, að berjast fyrir lífi sínu í ísköldu vatni er ekki "bað" eins og þú  kallar það. Dýrin voru í orðsins fyllstu merkingu teymd út í stórhættu. Og ætla að draga dýrin upp úr ísköldu vatni er heimskulegra en orð fá lýst. Dýrin hafa án lítis vafa verið orðin dofin af kulda og búin að missa mátt og stjórn á útlimum sínum. Það ætti að kæra þessa menn fyrir brot á dýraverndarlögum.

helga (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 17:43

4 identicon

já magnað hvað æsingurinn getur orðið mikill hér á athugasemdunum.is en ég vil ítreka að svartur á leik.

Krímer (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband