Leita í fréttum mbl.is

Pistill úr Páfagarði

Það hefur líklega ekki farið fram hjá lesendum þessarar bloggsíðu, að er ég staddur í Róm þessa dagana. En ég er alls ekki einn á ferð, við erum nefnilega fjögur saman. Ber þar fyrst að nefna Björk Jóhannsdóttur, lífsförunaut minn síðustu þrjá áratugina, nú og svo auðvitað Ingimund Grétarsson maraþonhlaupara úr Borgarnesi, já og síðast en ekki síst Auði H Ingólfsdóttur, fyrrverandi vinnufélaga og núverandi starfsmann UNIFEM í Makedóníu.

Og af því að lífið snýst ekki bara um hlaup, skruppum við í Vatíkanið í dag. Ekki gafst þó færi á að ræða við Benedikt sextánda um smávægilegan hugmyndafræðilegan ágreining okkar tveggja varðandi skipulag fjölskyldumála í þriðja heiminum. Hins vegar fengum við tækifæri til að skoða Péturskirkjuna, listasafn Vatíkansins og Sixtínsku kapellan. Það var eftirminnileg gönguferð, sem tók um þrjá og hálfan klukkutíma frá því að við tókum okkur stöðu í biðröðinni á Péturstorginu og þar til við gengum út úr listasafninu. Það er ótrúleg upplifun að sjá þessar tilkomumiklu byggingar og öll þessi ótrúlegu listaverk, sem mörg hver eru svo vel þekkt úr listasögunni

Eftirfarandi myndir gefa einhverja hugmynd um viðfangsefni dagsins:

Róm080315 006web

Björk, ég og Auður fyrir framan Péturskirkjuna. Þetta var til skamms tíma stærsta kirkja í heimi.

Róm080315 017web

Það var smávegis biðröð eftir að komast inn í kirkjuna, en við vorum snemma í því og þurftum ekki að bíða neitt óskaplega lengi. Þarna eru Auður, Björk og Ingimundur fremst, og þegar horft er til baka sést biðröðin fyrst til vinstri og síðan til hægri yst á torginu og þvert yfir það.

Róm080315 034web

Auður og Björk komnar inn í Péturskirkjuna. Þar er hátt til lofts og vítt til veggja. Þrátt fyrir mikið skraut er kirkjan afar stílhrein að innan.

Róm080315 072web

Björk með englum í einni af útbyggingum Péturskirkjunnar.

Róm080315 106web

Ingimundur í listasafninu. Eiginlega er þessi salur kortasalur, af því að það er svo mikið af landakortum á veggjunum. Og líklega hefur ekkert þýtt fyrir lofthrædda listmálara að ráða sig í vinnu þarna á sínum tíma.

Róm080315 137web

Dómsdagur á vegg Sixtínsku kapellunnar. Hvernig nennti Michelangelo þessu nú eiginlega? En alla vega: Þetta er nú með því tilkomumesta sem maður hefur séð!

Róm080315 150web

Götusalarnir röðuðu sér þétt á gangstéttina fyrir utan safnið í Vatíkaninu, tilbúnir fyrir næstu biðröð.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ja góðan daginn þarna i Róm. Mér hafði svo sem aldrei dottið í hug að þið Ingimundir myndið vinna þetta áreynslulaust og það er gott að þú ert búinn að átta þig á því. En gangi ykkur nú vel og takk fyrir þessar fínu myndir. Þvílíkt ævintýri. Kærligste hilsner fra Danmark

Þórey mágkona (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 21:14

2 identicon

Ég var að koma ofan úr Hlíðarfjalli.  Varð hugsað til þín þegar ég áttaði mig allt í einu á því hvaða dagur er.  Ætli þú sért ekki að hlaupa maraþon akkúrat núna þegar ég skrifa þetta :)  Já, ég öfunda þig næstum því.  En, skíðafærið hér á Akureyri er nú heldur ekki dónalegt.

Fríða (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 12:44

3 identicon

Ohh hvað það hlýtur að vera ÆÐISLEGT að koma til Rómar og fá að skoða öll herlegheitin. Þið farið bráðum afur er það ekki :)

Stebbi þú manst, með fraktara og farfuglaheimili :)

Gaman að sjá myndirnar frá ykkur :)

knús

Ég og bumbus sem er enn á hvolfi :)

Harpa frænka (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 18:04

4 identicon

Aah, ég trúi ekki að ég hafi misst af Michelangelo.. ég verð lengi að jafna mig á þessu!

Jóhanna (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband