Leita í fréttum mbl.is

Maraþonblogg

Um helgina brá ég mér til Akureyrar til að taka þátt í maraþonhlaupinu sem þar var haldið í tengslum við 26. Landsmót UMFÍ. Í stuttu máli gekk þetta allt eins og best verður á kosið, bæði hvað árangur og veður varðar. En til að gera stutta sögu langa, ætla ég að segja svolítið meira frá þessu skemmtilega hlaupi. Þetta er sem sagt maraþonblogg!

Ég tók daginn frekar snemma þennan laugardagsmorgun, var kominn fram í minn hefðbundna morgunmat fyrir klukkan hálfsjö, AB-mjólk með miklu af lífrænt vottuðu múslíi. Vaknaði reyndar næsta saddur, því að rétt fyrir kl. 11 kvöldið áður hafði ég staflað í mig miklu af steiktri bleikju og fersku salati á Bautanum í góðum félagsskap þeirra Gunnlaugs Júlíussonar ofurhlaupara og Ingimundar Grétarssonar, hlaupafélaga míns úr Borgarnesi og aðstoðarmanns Gunnlaugs í hlaupinu mikla frá Reykjavík til Akureyrar, sem lokið hafði fyrr um kvöldið með því að Gunnlaugur hljóp léttur í spori inn í setningarathöfn landsmótsins. Ég held að bleikja og ferskt salat sé ákaflega góð undirstaða fyrir maraþonhlaup, enda get ég sagt eins og Jónas Ólafsson, fyrrum kollegi minn á Þingeyri, sagði einu sinni við kvöldverðarborðið á Hótel Ísafirði: "Ég er nú frekar lítið fyrir pasta".

Einhvern tímann fyrir klukkan hálfníu var ég mættur á hinn nýja og glæsilega íþróttaleikvang á Þórssvæðinu, en þar átti hlaupið að hefjast kl. 9.00. Þarna var lítið hitað upp, en meira spjallað. Veðrið var eins og best verður á kosið, hægur vindur, glaðasólskin og hitinn eitthvað um 13 gráður, hækkandi. Hlaupið lagðist vel í mig. Áætlunin hljóðaði upp á að hlaupa fyrsta spölinn á u.þ.b. 4:50 mín hvern kílómetra og sjá til hversu lengi ég héldi það út. Þessi hraði skilar manni í mark á 3:24 klst., sem var nokkurn veginn í takti við mína villtustu drauma. Draumurinn var samt sá að komast niður fyrir 3:30 klst., en hið "opinbera" markmið var að bæta fyrri árangur, þ.e.a.s. 3:33:00 klst. frá því í Róm í fyrravor. Varamarkmiðið var að hlaupa á skemmri tíma en 3:40 klst., en mér hefði þótt erfitt að sætta mig við lakari tíma en það. Taldi mig enda vera í ágætu standi.

Og svo var hlaupið af stað. Í svona veðri er varla hægt annað en vera léttur í spori - og það fannst mér ég líka vera. Hélt mig framarlega í hópnum og eftir fyrsta kílómetrann sýndi klukkan eitthvað rétt rúmlega 4:30 mín. Ég tók svo sem ekkert mark á þeim tíma, enda fara fyrstu 2-3 kílómetrarnir yfirleitt bara í að finna taktinn. Millitíminn eftir 5 km var hins vegar 23:13 mín, eða 4:39 mín/km. Þetta var nú töluvert meiri hraði en ég hafði ætlað mér, en meðan manni líður vel er ástæðulaust að breyta til. Ég hélt því bara mínu striki, enda nóg af hlaupurum í kringum mig til að skapa hvatningu.

Hlaupaleiðin lá fyrst um Oddeyrina og síðan inn með Pollinum, alveg inn að Skautahöll. Þar var snúið við og hlaupið til baka í gegnum miðbæinn. Á Ráðhústorginu voru 7,8 km að baki, og þar var drykkjarstöð nr. 2. Ég hafði skipulagt vatns- og gelmálin eftir bestu getu fyrir hlaupið. Þetta skipulag gekk út á að taka ekkert vatn með, enda finnst mér hver vatnsbrúsi þyngja mig örlítið, enda eigin líkamsþyngd svo sem ekki á við gríðarlega marga svoleiðis brúsa. Þetta þorði ég að gera vegna þess að drykkjarstöðvarnar voru þéttar og vel kynntar í keppnisgögnunum. Ég hafði 6 bréf af geli meðferðis, ætlaði að innbyrða innihaldið úr 5 þeirra og eiga það sjötta til vara. Fyrsta gelið gleypti ég sem sagt þarna á Ráðhústorginu.

Eftir Ráðhústorgið lá leiðin aftur út Glerárgötuna og síðan niður Tryggvagötu og annan hring um Oddeyrina. Á Tryggvagötunni, eða kannski fyrr, var ég kominn í góðan félagsskap hjóna úr Grafarvoginum, þeirra Ingibjargar Kjartansdóttur og Aðalsteins Snorrasonar. Þau áttu eftir að reynast mér einkar þægilegir ferðafélagar. Ekki einasta héldu þau jöfnum og góðum hraða sem hentaði mér einkar vel, var sem sagt aðeins meiri en ég hafði þorað að reikna með, heldur voru þau líka jákvæð og viðræðugóð, eins og fólk þarf náttúrulega að vera í svona hlaupum til þess að njóta dagsins. Þessi samfylgd átti eftir að endast næstu 15-20 kílómetra.

Fyrr en varði voru 10 km að baki og ekki nema 46:47 mínútur liðnar af hlaupinu. Örlítið hafði hraðinn minnkað, en meðalhraðinn var þó enn 4:40 mín/km. Svona til samanburðar var millitíminn eftir 10 km í hraðasta maraþoninu mínu hingað til, í Róm í fyrravor, 51:31 mín. Með sama áframhaldi stefndi því í góða bætingu, jafnvel þótt eitthvað myndi draga af mér þegar á liði hlaupið. Reyndar bægði ég öllum svona vangaveltum frá mér og einbeitti mér að gleðinni, góða veðrinu og þessum góða félagsskap.

Þegar við komum aftur inn að Skautahöll voru 12,7 km að baki. Þar hafði ég ætlað að gleypa gel nr. 2, en einhvern veginn tókst mér að gleyma því. Líklega hefur mér einfaldlega liðið of vel til að ég myndi eftir gelinu. Hins vegar gerði ég vatninu góð skil. Reyndi að ná tveimur vatnsglösum á öllum drykkjarstöðvum, enda skein sólin glatt og hitinn fór greinilega hækkandi. Mér fannst hitastigið samt alls ekki til trafala, nema síður væri. En ég fann að ég svitnaði óvenju mikið, og þá er eins gott að muna eftir vökvanum.

Eftir að ég uppgötvaði þetta með gleymda gelið, hafði ég svolitlar áhyggjur um stund. En þar sem ég hafði ekkert vatn meðferðis, og það gefst ekki vel að gleypa í sig gel og drekka ekkert með því, var ekki um annað að ræða en að bíða fram að næstu drykkjarstöð og laga gelskipulagið að þessari gleymsku að öðru leyti. Reyndar þurfti ég ekki lengi að bíða, því að næsta drykkjarstöð var við Vaglir í Eyjafjarðarsveit. Þar voru 17 km að baki. Millitíminn á 15 km hafði verið 1:10:11 klst., og meðalhraðinn því kominn niður í 4:41 mín/km, sem sagt allt í stakasta lagi og meira en það. Ég var að vísu aðeins farinn að velta fyrir mér hvort ég hefði ekki verið heldur spar á sólaráburðinn um morguninn, en áhyggjur hafa sjaldnast komið nokkrum að gagni.

Næstu kílómetrana var lítið gefið eftir. Millitíminn eftir 20 km var 1:33:56 klst., og hálfa maraþonið kláraðist á 1:39:08 klst. Ég hef nú nokkrum sinnuð lokið hálfu maraþoni á lakari tíma en það, enda var ég þarna kominn með rúmlega 7 mínútna forskot miðað við Rómarmaraþonið í fyrra. Meðalhraðinn þegar þarna var komið sögu var 4:42 mín/km, og með sama áframhaldi hefði hlaupið klárast á 3:20 klst. eða þar um bil. En ég hélt væntingunum í skefjum, enda góður spölur eftir.

Rétt "sunnan við hálfa maraþonið", nánar tiltekið við syðri afleggjarann að Kristnesi, var enn ein drykkjarstöðin. Þar gleypti ég gel nr. 3, og þar með var geláætlunin komin í þokkalega réttar skorður. Drykkjarstöðvar í maraþonhlaupum eru mér alltaf svolítið eins og vinjar í eyðimörk, sem sagt eitthvað til að hlakka til. Ég verð alltaf heldur meir þegar líður á svona löng hlaup, og þá gefa jafnvel hógværustu hvatningarorð mér nýjan kraft til dáða. Í þessu hlaupi fannst mér líka sérlega notalegt að sjá akureyrskum Eyrarskokkurum, svo sem Fríðu, Val og fleirum, bregða fyrir á drykkjarstöðvum og annars staðar við brautina. Ég hef átt nokkrar góðar laugardagsmorgunstundir með þessu fólki síðustu tvo vetur þegar ég hef verið staddur nyrðra, og í framhaldinu hafa gefist fleiri tækifæri til að hlaupa saman annars staðar á landinu. Langhlaup eru nefnilega ekki nærri eins einmanalegt áhugamál og sumir kunna að halda.

Þegar drykkjarstöðinni við Kristnes sleppti tók ný tilhlökkun við, því að við 25 km markið við Stokkahlaðir var kominn tími á að snúa við og hlaupa aftur út á Akureyri. Það er nú kannski of snemmt að tala um endasprett þegar maður á rúma 17 km eftir, en samt er alltaf einhvern veginn betra að vera á "heimleið", eða vera kominn á "beinu brautina".

Alllöngu áður en ég kom að snúningspunktinum birtust fyrstu hlaupararnir í hinum vegkantinum. Um leið gafst færi á að gera manntal til að átta sig á hvar maður væri í röðinni. Áður en að punktinum kom, var ég búinn að mæta 8 manns, var sem sagt í 9. sæti sjálfur. Var vel sáttur við það. Annars skiptir svo sem engu máli í hvaða sæti maður lendir í svona hlaupi, því að eini keppinauturinn er jú maður sjálfur og fyrri árangur. Tíminn eftir 25 km var 1:58:17 klst. og meðalhraðinn kominn niður í 4:44 mín/km. Skömmu eftir snúninginn datt ég reyndar niður í 10. sæti við það að Halldór Arinbjarnarson skaust fram úr mér. Samfylgdinni við Ingibjörgu og Aðalstein var því miður lokið, en ég man reyndar ekki hvort þau voru á undan mér eða á eftir á þessum tímapunkti.

Ég hafði ekki hlaupið lengi eftir "beinu brautinni" þegar ég mætti Ingimundi hlaupafélaga. Hafði varla búist við honum svona fljótt, því að bæði hafði ég sjálfur haldið talsvert meiri hraða en ég reiknaði með, og eins kom hann jú beint frá því að fylgja Gunnlaugi alla vikuna í hlaupinu mikla, en fylgdin fól meðal annars í sér að hlaupa með Gunnlaugi fyrsta spölinn á hverjum einasta morgni. Vikuskammturinn hjá Ingimundi var þannig kominn í 55 km áður en maraþonið var ræst, sem er mun meiri vegalengd en almennt er mælt með síðustu vikuna fyrir keppni. Nokkru síðar mætti ég Gunnlaugi sjálfum, léttum í spori að vanda og glaðlegum. Það var ekki að sjá að maðurinn væri nýkominn hlaupandi frá Reykjavík!

Ég held að við höfum ekki haft neinn meðvind að gagni á fyrri hluta hlaupsins, en eftir snúninginn við Stokkahlaðir var golan greinilega í fangið. Klukkan var jú orðin 11 og ekki óalgengt að hann bresti á með innlögn þegar kemur fram undir hádegi á hlýjum sumardögum. Ég hef það reyndar fyrir satt að það sé ekkert erfiðara að hlaupa í mótvindi, en það er þó alla vega ívið seinlegra. Þetta sá ég greinilega við 30 km markið, en þar sýndi klukkan 2:24:00 klst. Síðustu 5 km voru mun hægari en þeir fyrri. Meðalhraðinn á þeim var bara 5:09 mín/km, en meðalhraðinn í heildina 4:48 mín/km. Þetta var sem sagt farið að nálgast upphaflegu áætlunina upp á 4:50 mín/km, en ég velti því ekki svo mikið fyrir mér.

Við drykkjarstöðina við Kristnes (við 29 km) hafði ég gleypt gel nr. 4 - koffínbætt. Hvort sem það var því að þakka eða einhverju öðru efldist ég allur eftir að 30 km voru að baki. Var reyndar hættur að fylgjast með hraðanum og hljóp bara eins hratt og mér fannst þægilegt. Á þessum kafla náði ég smátt og smátt hverjum hlauparanum á fætur öðrum. Eftir 35 km var tíminn 2:48:49 mín og meðalhraðinn frá upphafi 4:49 mín/km.

Við Skautahöllina voru búnir 37,7 km. Þar tók ég síðasta gelið og einbeitti mér að því að hugsa um hvað þessir 4,5 km sem eftir væru í markið væru í raun ótrúlega stutt vegalengd, eiginlega svo stutt að svona dags daglega þætti manni ekki taka því að fara út að hlaupa hana. Auðvitað var þreytan farin að segja eitthvað til sín í fótunum, en á móti kom að ég vissi að það yrði gaman að koma í mark, og góð bæting lá í loftinu þó að enn gæti margt gerst. Var líka nýbúinn að hlaupa mig upp í 6. sæti, þ.e.a.s. ef ég hafði ekki ruglast í talningunni. Ég tel mig nefnilega hafa tekið eftir því að greindarvísitala mín lækkar þegar líður á svona löng hlaup. Ætli þetta virki ekki svipað og samdráttur í heilbrigðiskerfinu, einhvers staðar situr einhver yfirstjórn og ákveður að loka deildum í heilanum til að hægt sé að halda öllum helstu hlaupadeildunum gangandi (já, eða hlaupandi).

Næsta tilhlökkunarefni var að hlaupa eftir göngugötunni. Þar sá ég fyrir mér ótrúlegan fólksfjölda sem myndi fagna mér gríðarlega þegar ég kæmi yfir göt-huna hjá Baut-hanum. Þarna stóð reyndar Valur Þór Hilmarsson og kallaði til mín nokkur vel valin hróss- og hvatningarorð. Það var einkar hressandi á þessum tímapunkti, en fólkið í göngugötunni var færra og fálátara en ég hafði látið mig dreyma um. Reyndar grunar mig að þarna hafi lokun heilastöðva einnig slævt upplifunina.

Á Ráðhústorginu varð ég fyrir pínulitlu óhappi. Náði nefnilega ekki að ramba alveg rétta leið út af torginu, og allt í einu var þessi fíni bekkur búinn að taka sér stöðu fyrir framan tærnar á mér. Ég sá engan annan kost í stöðunni en að stíga upp á bekkinn, hvað ég og gerði. Fékk fyrir vikið krampa aftan í annað lærið, en tókst að losna við hann með því að ganga rólega nokkur skref. Um þessar mundir var ég rétt í þann mund að ná enn einum hlauparanum. Komst fram úr honum eftir að krampinn leið hjá. Þarna voru 40 km að baki og klukkan sýndi 3:14:08 klst. Reiknistöðin í heilanum var sett í samband í smástund, og um leið varð ég býsna viss um að lokatíminn yrði alla vega ekki lakari en 3:27 klst. Það gat bara ekki verið að ég yrði meira en 13 mínútur að skrölta þessa 2,2 km sem voru eftir í markið.

Leiðin út Glerárgötuna var erfið. Þar var fólk á gangi, og einhvern veginn fannst mér að ég hlyti að hlaupa á það. En ekkert slíkt gerðist, og þrátt fyrir allt bendir flest til að ég hafi hlaupið þessa síðustu kílómetra á svo sem 5:10 mín. hvorn um sig. Þeir sem leggjast yfir allar þær tölur sem ég hef tínt til í þessum pistli, gætu reyndar fengið örlítið aðra niðurstöðu, en það helgast af því að allir millitímar eru miðaðir við vegalengdarmælinguna í gps-úrinu mínu ("Garminum"), en viku í reynd um 0,3% frá hinni löggiltu mælingu hlaupsins. Hlaupið mældist þannig 42,33 km, en var í reynd 42,2 km eins og gerist og gengur með maraþonhlaup. (Þeir sem ekki eru tölfræðinördar geta svo sem sleppt því að lesa þessar upplýsingar).

Síðasti spölurinn lá upp Höfðahlíð. Þar er dálítil brekka, sem tók vissulega í, en ég gat nú samt hlaupið hana svona þokkalega. Og allt í einu var ég kominn inn á leikvanginn. Þar stóðu Halli bróðir og Bára við hliðið. Það var gott að sjá þau, og síðustu sporin urðu örlítið léttari fyrir vikið. Einhvers staðar á brautinni hljóp ég líklega fram úr sigurvegaranum í kvennaflokki, sem lenti í hremmingum þarna í blálokin. En ég tók ekkert eftir því. Endamarkið var í beygjunni norðanvert á vellinum. Þangað var ég allt í einu kominn, og þegar ég stöðvaði klukkuna sýndi hún 3:25:58 klst. Sjö mínútna bæting var staðreynd, ég líklega í 4. sæti af öllum hlaupurunum - og hreinlega í 7. himni. Var býsna lerkaður fyrstu mínúturnar, en gat þó bæði sest niður og staðið upp aftur, en það finnst mér ágætur mælikvarði á ástand mitt eftir maraþonhlaup.

Fyrsti klukkutíminn eftir hlaupið fór í að njóta góða veðursins og þess að vera til, tala við alla sem ég sá og þekkti hið minnsta - og bara svona almennt talað að velta mér upp úr sigurvímunni, þó að ég hefði svo sem ekki sigrað neitt nema sjálfan mig. Jú, reyndar kom í ljós seinna um daginn, sem mig grunaði reyndar strax, að ég hafði komið í markið fyrstur fimmtugra karla (50-59 ára). Ingimundur skilaði sér í markið skömmu síðar og náði þar með 3. sæti í þessum sama aldursflokki, auk þess sem hann bætti tímann sinn ágætlega, var á tæplega 3:33 klst. þrátt fyrir öll hlaupin dagana á undan.

Ég held að þessi frásögn sé orðin næstum nógu löng. Það er lán að ég tek ekki oft þátt í maraþonhlaupum, því að þá myndi Internetið sjálfsagt fyllast fyrr en varir af maraþonpistlum. Þetta var nánar tiltekið bara 5. maraþonhlaupið mitt á 40 ára ferli sem hlaupara. Það fyrsta þreytti ég ungur að árum sumarið 1996, en heldur hefur þetta ágerst allra síðustu ár.

Fyrst talið berst að atburðum síðustu aldar, þá vill svo skemmtilega til að þennan bjarta og fagra maraþondag voru liðin nákvæmlega 34 ár frá því að ég keppti fyrst á landsmóti. Það var á Akranesi 11. júlí 1975. Keppnisgreinin var 5.000 m. hlaup, og meðal keppenda var Jón heitinn Sigurðsson frá Úthlíð, sem Gunnlaugur minntist einmitt með hlaupinu mikla frá Reykjavík til Akureyrar, auk þess sem hann var að vekja athygli á þörf Grensásdeildarinnar fyrir bætta aðstöðu. Jón var mikill keppnismaður. Hann datt illa í þessu tiltekna hlaupi á Akranesi, en áður en yfir lauk var hann búinn að ná mér og öllum hinum hlaupurunum aftur, nema Jóni Diðrikssyni, sem var ósigrandi á þessari vegalengd á þessum árum.

Lýkur hér að segja frá skemmtilegu maraþoni á Akureyri 11. júlí 2009. Eftir standa góðar minningar, pínulítill stirðleiki í fótum og mikið þakklæti til allra sem gerðu þetta að eins skemmtilegum viðburði og raun ber vitni.

Myndina tók Fríða (Arnfríður Kjartansdóttir) af okkur verðlaunahöfunum í flokki 50-59 ára í maraþoninu. F.v.: Gautur Þorsteinsson (2. sæti, 3:28 klst), ég sjálfur (1. sæti, 3:26 klst) og Ingimundur Grétarsson (3. sæti, 3:33 klst). Tímarnir eru birtir með fyrirvara, því að endanlegir tímar eru ekki komnir. Samtals luku 14 karlar á þessum aldri hlaupinu.
0710 023webs


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju aftur. Það er  langt í það að ég nái þoli og þolinmæði að hlaupa heilt maraþonhlaup, en ég las hins vegar allan pistilinn, tölfræðina og allt saman...

Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 10:42

2 Smámynd: Fríða

bloggarinn hún elsta dóttir mín kvartar yfir því að þegar hún skrifar langar færslur fái hún oft engar athugasemdir.  Nú skil ég af hverju, það er svo margt um þetta að segja að ég veit ekki hvar á að byrja.  En til hamingju allavega :)  Þetta með hvatninguna meðfram brautinni, manni finnst einhvernveginn þegar maður er ekki að hlaupa sjálfur að það geti nú ekki skipt máli hvort maður galar eitthvað á þá sem eru þarna úti á götu að puða.  En ef ég set mig í hlauparagírinn, þá rifjast upp fyrir mér hvað þetta skiptir ótrúlega miklu máli.  Ég meira að segja kvartaði við bróður minn yfir því að hann var hvergi sjáanlegur þegar ég hljóp Reykjavíkurmaraþon í annað skiptið, hann hafði hlaupið með mér smá spöl í fyrsta skiptið.  Svona skiptir svo miklu máli!  Því hlaup eiga ekki að vera einmanaleg.  En mér finnst alveg frábært ef þér hefur tekist að líta á heila 17 kílómetra sem endasprett.  Það hlýtur að hafa hjálpað mikið að fara fram úr svona mörgum.  Næst ætla ég að muna að hafa bílgluggana meira opna og hvetja ennþá meira ef ég verð í sama hlutverki þá eins og ég var núna.  Og það verður pottþétt eitthvað næst.  Spurning hvort þér tekst aftur að bæta tímann :)

Fríða, 13.7.2009 kl. 13:44

3 identicon

Ég las þetta í gærkvöldi. Núna áðan sá ég líka mynd af þér að koma í mark á mbl.is. Á henni voru tveir menn að henda steindauðum "sigurvegara" í kvennaflokki inná mottuna tilað stoppa tímann áður en hún var sett inní sjúkrabíl. Fólk horfði áhyggjufullt á það náttúrulega. En á þessari sömu mynd ert þú skælbrosandi að koma í mark, líklega að leita að einhverjum til að "gefa fimmu". Mér fannst þetta fyndið. Hérna er hún http://www.mbl.is/mm/frettir/popup/mynd.html?imgid=503900;nid=1429662

Keli (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 16:55

4 Smámynd: Njörður Helgason

Þetta er skemmtileg lesning. Prýðisgott og skemmtilegt hlaup.Gaman hefði að vera á staðmum.

Nú er ég fyrrverandi hlaupari sem líkar góðar sögur eins og þessi og gæli mér við að skoða tímana mína.

Njörður Helgason, 13.7.2009 kl. 18:34

5 Smámynd: Fríða

Myndin sem Keli bendir á er kannski lýsandi fyrir ungmennafélagsandann og svo skort á slíkum

Fríða, 13.7.2009 kl. 18:40

6 identicon

Fín frásögn Stefán og takk fyrir daginn. Það er alltaf gaman að lesa vandaðar frásagnir af maraþonhlaupum því hvert og eitt er einstök upplifun. Hvert hlaup er hlaupið!!

Gunnlaugur (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 19:06

7 identicon

Til hamingju með þetta Stefán. Ég dáist alltaf af þessum andlega styrk, ekki síður en hinu líkamlega þoli, að klára svona hlaup, og það líka með svona glans.

bjornba (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 20:40

8 identicon

Til hamingju með sigurinn,skemmtileg færsla hjá þér ,gaman að lesa.

Númi (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 23:05

9 Smámynd: Stefán Gíslason

Takk öll fyrir jákvæðar og hvetjandi athugasemdir! Góð ábending hjá þér Auður með þolið OG þolinmæðina. Maður þarf nefnilega heilan helling af hvoru tveggja. Reyndar átt þú greinilega góðar birgðir af þolinmæði fyrst þú last allan pistilinn.

Og Keli, það er búin að vera mikil umræða í gangi í dag um þetta atvik þarna á markmottunni. En ég hef verið í öðru, þannig að þetta hefur að mestu farið fram hjá mér. Mér finnst lýsingin hjá þér skemmtilega beinskeitt og óþægilega sönn. Svona var þetta náttúrulega. Þegar ég skoða myndina er ég mest hræddur um að mér verði kennt um að hafa hrint blessaðri konunni til að verða á undan henni í mark. Þess vegna sé ég með þetta skelmislega glott. En ég lýsi því hér með yfir að ég er alsaklaus! Ég var svo sjálfhverfur á þessu augnabliki að ég tók hvorki eftir konu né neinu öðru. Skynjaði þó einhverja dramatík og heyrði fólk tala um sjúkrabíla og svoleiðis. Vissi ekki að þetta hefði verið svona slæmt fyrr en þú vísaðir mér á þessa mynd. Auðvitað má ekki hjálpa fólki svona. Ef fólk getur ekki lokið hlaupi af heilsufarsástæðum þarf að grípa strax inn í til að tryggja öryggi viðkomandi. En þar með lýkur líka þátttöku viðkomandi í hlaupinu, nema aðstoðin sé beinlínis hluti af auglýstri þjónustu hlauphaldara. Og Fríða: Það verður gaman næst. Þetta á að vera gaman. Til þess er leikurinn gerður. Leiðindi eru BARA leiðinleg.

Takk aftur öll! Mér finnst ótrúlega gaman að fá svona athugasemdir!

PS: Kannski ætti ég að skrifa sérstaka bloggfærslu um að undirbúningur fyrir maraþonhlaup snúist ekki bara um hlaup?

Stefán Gíslason, 14.7.2009 kl. 00:49

10 identicon

Til lukku með sigurinn, ég vissi það ekki þegar ég sendi þér mailið í gærkveldi. :-)

Frábær árangur. 

Brynja G (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 13:14

11 identicon

Til hamingju með hlaupið Stefán! Takk fyrir skemmtilega og lifandi frásögn sem var virkilega gaman að lesa, einkum þar sem hlaupafélagar mínir Ingibjörg og Alli áttu þátt í að gera þína upplifun af deginum svo góða :-) Annað sem við eigum sameiginlegt og mér fannst gaman að þú skildir minnast á var landsmótið 1975 sem einmitt var mitt fyrsta landsmót líka!!!!!  þar sem ég keppti í 400m og 800m hlaupi og sundi fyrir mitt gamla félag HSK þar sem mikil landsmótshefð var og er ríkjandi. (keppti svo 1978 1981 og á Egilstöðum 2001) þannig að með þátttöku í hálfa maraþoninu núna var í raun mitt fimmta landsmót....en að það hafi verið upp á dag 34 ár frá því fyrsta hafði ég ekki gert mér grein fyrir. Takk aftur það er alltaf gaman að lesa svona jákvæðar frásagnir og minningin um hlauparann gæðadrenginn Jón H lifir með okkur sem kynntumst honum.  Gangi þér vel á hlaupunum.

Erla Gunnars (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 22:17

12 Smámynd: Stefán Gíslason

Takk Brynja, Halldór og Erla! Gaman að sjá að það eru fleiri en ég sem kepptu á Akranesi 1975 og eru enn að.

Stefán Gíslason, 16.7.2009 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband