Leita í fréttum mbl.is

Gaflfellsheiðin framundan

Nú er farið að styttast í Gaflfellsheiðina. Ætla að skokka yfir hana fimmtudaginn 11. september nk. í tilefni af því að þá verða liðin 100 ár frá fæðingu pabba – og hann steig jú fyrstu sporin á Brunngili í Bitru, einmitt þar sem komið er niður af heiðinni að norðanverðu.

Hlaupið yfir Gaflfellsheiðina byrjar hjá bænum Ljárskógum, skammt norðan Búðardals. Fyrstu 10 kílómetrarnir fram að Ljárskógaseli eru greiðfærir og næstu 8 líka að ég held, eftir slóða sem mér skilst að sé jeppafær, fram á svonefndar Hvanneyrar að leitarkofa Laxdæla. Þar tekur hinn eiginlegi heiðarvegur við, líklega um 14 km norður að Brunngili. Síðasti spölurinn er síðan svo sem 5 km frá Brunngili niður að vegamótum við Djúpveg við botn Bitrufjarðar. Þar endar ferðalagið, samtals sem sagt um 37 km. 

Að mér meðtöldum hafa eitthvað um 5 manns líst áhuga á að koma með í þetta ferðalag. Vona bara að sem flestir sláist í hópinn. Því fleiri, þeim mun skemmtilegra. Smile Ég ætla svo sem ekki að skipuleggja neitt, en reyni auðvitað að gefa góð ráð um bestu mögulegu nýtingu bílferða og svoleiðis. Væntanlega verður hægt að fá far með fjallajeppa bróður míns framundir Hvanneyrar og hlaupa svo (eða ganga) þaðan til að stytta leiðina svolítið. Eins stefna einhverjir að því að hefja ferðalagið við Brunngil og taka síðasta spölinn. Það er sem sagt engin skylda að slást í hópinn alla leiðina.

Ég er búinn að skrifa svolítið um Gaflfellsheiðina á fjallvegahlaupasíðuna mína, nánar tiltekið á http://www.environice.is/default.asp?Sid_Id=38189&tId=1.

Sendið mér endilega línu ef ykkur langar að taka þátt í þessari uppákomu. Það er líka allt í lagi að spyrja ef eitthvað er óljóst. Er ekki bara málið að skella sér? Wink

Hægt er að fræðast meira um fjallvegahlaupaverkefnið mitt á www.fjallvegahlaup.is.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við eldri systkinin ætlum ekki að leggja í það þrekvirki að hlaupa, en í þess stað höfum við hugsað okkur að ganga frá „upphafi til enda“, þ.e. frá Brunngili, þar sem pabbi fæddist og ólst upp, langleiðina heim að Hvítarhlíð þar sem hann átti heima 1930-56 og þaðan að Gröf, þar sem hann bjó frá 1956 til dánardags. Leiðin mun vera rúmir 14 kíllómetrar og ætlum við að ganga á okkar hraða (fremur rólega), sem þýðir væntanlega að við verðum í það minnsta 3,5 klst. Að sjálfsögðu er þeim sem hafa áhuga velkomin að koma með okkur.

Hallgrímur Gíslason (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband