Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Ólíkt höfumst við að

Borgaryfirvöld í New York hafa ákveðið að banna bílaumferð í grennd við Broadway og Times Square, en á Íslandi þora menn ekki að byggja upp eina einustu göngugötu án þess að leyfa dálitla bílaumferð um hana líka, sem þýðir auðvitað að göngugatan er ekkigöngugata.

Því hefur verið haldið fram að göngugötur þrífist ekki á Íslandi af því að þar sé svo kalt, eða svo hvasst, eða svo mikil rigning. En ekkert af þessu stenst þegar aðstæður eru bornar saman við ýmsar norðlægar borgir. Málið snýst miklu fremur um þann stóra veikleika Íslendinga að þora ekki að taka afstöðu, að þora ekki að segja nei. Kannski blandast meira að segja landlæg minnimáttarkennd þarna inn í, nefnilega sú trú að maður sé lítill nema að maður sé alltaf að sýna hvað maður sé stór. Stórir menn eiga nóg af peningum og stóra bíla og eru alltaf að flýta sér. Stórum mönnum finnast göngugötur gamaldags á meðan framtíðin hamast við að koma allt í kringum þá.


mbl.is Engir bílar við Times Square
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnlaugur vann!

Gunnlaugur Júlíusson ofurhlaupari hljóp lengst allra í 48 tíma hlaupinu sem lauk á Borgundarhólmi fyrir tæpum tveimur tímum. Hann lagði að baki hvorki meira né minna en 334 km eða 11 km meira en næsti maður. Þetta er fyrsti sigur Íslendings í ofurmaraþoni erlendis - og hreinlega ótrúlegt íþróttaafrek. Með þessum árangri er Gunnlaugur kominn upp í 3. sæti á heimslistanum, skv. upplýsingum á www.hlaup.com. Fyrir okkur hin er þetta í senn mikil hvatning til dáða og áminning um að við getum flest það sem við ætlum okkur. Málið er bara að setja sér markmið og vinna markvisst að því. Þetta gildir ekki bara um ofurhlaup, heldur líka flest annað í lífinu.

Til hamingju Gunnlaugur!


Sæludagur í Svínaskarði

Í dag hljóp ég yfir Svínaskarð við áttunda mann. Hrepptum einmuna blíðu og rifjuðum upp hvers virði það er að vera úti í íslenskri náttúru. Þetta var 11. fjallvegahlaupið mitt af 50, þannig að nú eru bara 39 eftir. Og ég get varla beðið eftir því að takast á við það næsta. Þetta er einfaldlega svo gaman!

Hlaup dagsins var samtals um 19,5 km og hófst í skemmuhverfinu á Esjumelum. Þaðan lá leiðin eftir veginum inn með Leirvogsá að ármótunum við Þverá rétt fyrir neðan bæinn Þverárkot. Þangað eru um 6 km frá upphafsstaðnum. Þessu næst var Þverá fylgt og síðan farið yfir Skarðsá á göngubrú, þá upp með Skarðsá upp í Svínaskarð á milli Móskarðshnjúka og Skálafells. Vegarslóði liggur alla leiðina yfir skarðið, en hann er mjög grófur og varla fær nema alvörujeppum og torfærutækjum.

Hópurinn dreifðist nokkuð á leiðinni upp í skarðið, enda hélt hver um sig þeim hraða sem honum þótti þægilegastur. Efst í skarðinu var áð um stund, en haldið áleiðis þegar allir voru komnir. Þarna voru 12,08 km að baki og klukkan mín sýndi 1:31:20 klst. Hæðarmælirinn stóð í 480 m, og samkvæmt því var hækkunin um 430 m.

Mér finnst alltaf mest gaman að hlaupa niður í móti, og því naut ég þess sérstaklega að hlaupa niður úr skarðinu og niður Svínadalinn áleiðis niður í Kjós. Niðurleiðin mældist 7,45 km með endapunkt á vegamótunum niðri á Kjósarskarðsvegi beint fyrir neðan Vindáshlíð. Jón Gauti Jónsson og Tryggvi Felixson fylgdu mér á niðurleiðinni, en aðrir fóru sér hægar, enda leiðin grýtt, laus í sér og viðsjárverð á köflum. Niðurleiðin tók ekki nema 39:39 mín, þannig að heildartíminn alla leiðina var 2:10:59 klst. Klukkan gekk allan tímann, líka á meðan áð var.

Það væri hægt að hafa mörg orð um það hversu skemmtilegt tómstundagaman það er að stunda fjallvegahlaup, sérstaklega eins og veðrið var í dag. En þau orð verða látin bíða betri tíma. Kannski verða sum þeirra skrifuð inn á fjallvegahlaupasíðuna mína www.fjallvegahlaup.is við tækifæri. Að kveldi dags er mér efst í huga þakklæti til ferðafélaganna 7 sem hlupu þennan spöl með mér, og þakklæti til forsjónarinnar fyrir að gera mér mögulegt að njóta svona útivistar og félagsskapar og fá að upplifa andartök þegar mér finnst ég hafa allt sem ég mun nokkurn tímann þurfa. Ætli það sé ekki það sem Laxnes kallaði kraftbirtíngarhljóm guðdómsins.

Sérstakar þakkir fær Tryggvi Felixson fyrir að benda mér á þessa leið og Sigrún Magnúsdóttir fyrir árangursríka samninga við veðurguðina. Og hér koma myndir frá hlaupi dagsins.

Svínaskarð 034crweb
Guðmann Elísson á göngubrúnni yfir Skarðsá. (Ljósm. SG)

Svínaskarð 064web
Allur hópurinn: F.v. Ég sjálfur, Hávar Sigurjónsson, Jón Gauti Jónsson,
Ingimundur Grétarsson, Birgir Þorsteinn Jóakimsson (krjúpandi),
Tryggvi Felixson, Guðmann Elísson og Arnfríður Kjartansdóttir.
(Myndin er tekin efst í Svínaskarði við grjóttóft sem er örugglega dys
Írafellsmóra. Hann tók myndina sjálfur um hábjartan dag)!

Svínaskarð 068web
Ég sjálfur ákaflega glaður við leiðarlok í Kjósinni. (Ljósm. Jón Gauti)


Svínaskarð framundan

Sumarið er komið! Kl. 14.00 í dag ætla ég að hlaupa af stað frá Esjumelum, áleiðis yfir Svínaskarð upp í Kjós við áttunda mann. Þetta verður fjallvegahlaup nr. 11. Nánar á fjallvegahlaup.is.
Smile


Eru Norðmenn okkur fremri?

Þrettán stærstu bæir Noregs hafa sameinast um aðgerðir sem leiða munu til 35% samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030, miðað við það sem var 1991. Bæirnir þrettán taka þátt í verkefninu „Framtidens byer“, sem norska umhverfisráðuneytið hleypti af stokkunum á síðasta ári í samstarfi við bæina. Verkefnið stendur til ársins 2014 og snýst um að finna leiðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þegar áhrif aðgerðanna voru kynnt í gær kom m.a. fram að með þessu næðu bæirnir enn betri árangri en stefnt er að í norsku loftslagssáttinni (Klimaforliket). Einnig kom fram að þegar tekið væri tillit til spár um fjölgun íbúa í bæjunum, samsvaraði árangurinn í raun allt að því 60% samdrætti í losun á hvern íbúa. Um leið myndu lífsgæði í bæjunum aukast, þar sem aðgerðirnar fælu m.a. í sér fjölgun hjólreiðastíga, minni bílaumferð, betri lausnir í fráveitu- og endurnýtingarmálum, auðveldari aðgang að endurnýjanlegri orku og aukna hæfni til að aðlagast loftslagsbreytingum.

Klausan hér að framan er tekin orðrétt upp úr „Orðum dagsins“ í dag, en „Orð dagsins“ eru eins og allir vita einn alöflugasti umhverfisfréttamiðill á Íslandi. Smile Klausan vekur upp spurningar um hvað íslensk sveitarfélög aðhafist í loftslagsmálum. Satt best að segja hef ég ekki orðið var við mikla hreyfingu í þá átt, nema hjá Reykjavíkurborg. Þar er verið að leggja lokahönd á sérstaka loftlags- og loftgæðastefnu, ef hún er þá ekki bara þegar tilbúin.

Ég hef orðið var við að margir Íslendingar telja þjóðina vera nokkurn veginn „stikkfrí“ í loftslagsmálum. Hér sé nefnilega notuð svo loftslagsvæn orka, að varla sé hægt að ná öllu betri árangri en þegar hefur náðst. Engu að síður eru Íslendingar þó í hópi þeirra þjóða sem losa allra mest af gróðurhúsalofttegundum á hvern íbúa, enda þjóðin gríðarlega háð innfluttu jarðefnaeldsneyti!

Þeim skjátlast sem halda að við getum ekki borið okkur saman við nágrannaþjóðirnar hvað loftslagsmál varðar. Það er líka misskilningur að aðgerðir nágrannaþjóðanna í loftslagsmálum snúist nær eingöngu um að hætta að brenna kolum og olíu til upphitunar og rafmagnsframleiðslu. Þetta sést vel þegar skoðaðar eru þær aðgerðir sem norsku bæirnir 13 ætla að grípa til. Þær skiptast í fjóra flokka:

1. Vegasamgöngur
Bæirnir ætla að stuðla að vistvænni samgöngum, m.a. með samstarfi við atvinnulífið.

2. Orkunotkun í byggingum
Bæirnir ætla að vinna að bættri orkunýtingu, líka í samstarfi við atvinnulífið.

3. Úrgangur og neysla
Bæirnir ætla að minnka losun gróðurhúsalofttegunda m.a. með vistvænum innkaupum, nýsköpun í flutningum og þróun umbúða, breyttu neyslumynstri og aukinni endurnýtingu og endurvinnslu.

4. Aðlögun
Bæirnir ætla að búa sig undir loftslagsbreytingar og vinna með atvinnulífinu að því að draga sem mest úr óæskilegum breytingum og gera sér grein fyrir efnahagslegum afleiðingum.

Íslendingar eru ekki „stikkfrí“! Ég bíð spenntur eftir aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda, bæði á vettvangi ríkis og sveitarfélaga. Gleymum því heldur ekki að þetta er líka ímyndarmál. Við eigum einfaldlega ekki að vera eftirbátar annarra á sviðum þar sem í þokkabót leynast fjölbreytt tækifæri til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar. Eitt af því fyrsta sem þarf að gera er að hrista upp í stefnumörkun ríkisstjórnarinnar á þessu sviði. Það er bara vandræðalegt að tala um 50-75% samdrátt í losun gróðurhúslofttegunda fram til ársins 2050, þegar fyrir liggur að iðnríkin þurfa að minnka losunina um allt að 95%!

Áfram Ísland!


Plast er ekki sama og plast

Fréttin um að Bisfenól-A berist í líkama þeirra sem drekka úr flöskum úr pólýkarbónatplasti er ein af mörgum sem minna á að neysluvörur nútímans og umbúðirnar utan um þær eru ekki allar hollar fyrir heilsu og umhverfi. Rétt er þó að benda á, að í þessu tiltekna tilviki snýst málið bara um flöskur úr pólýkarbónati, en t.d. ekki flöskur úr pólýetýleni, eins og flestar plastflöskur fyrir gosdrykki eru gerðar úr. Málið snýst sem sagt um þykku, sterku flöskurnar eins og þá sem íþróttamaðurinn á myndinni með fréttinni á mbl.is heldur á. Pólýkarbónatplast er auðkennt með tölustafnum 7 innan í þríhyrningi:

Polycarbonate

Almennt má gera ráð fyrir að hollara sé að drekka úr glerflöskum en plastflöskum, en hafa ber í huga að plast er ekki sama og plast. Annars mæli ég með að fólk æfi sig svolítið í dönsku með því að lesa þann fróðleik um Bisfenól-A á heimasíðu dönsku upplýsingamiðstöðvarinnar um umhverfi og heilsu, sem vísað var til í gær í „Orðum dagsins“ á heimasíðu Staðardagskrár 21 á Íslandi.

Takk mbl.is fyrir að sýna málinu áhuga!


mbl.is Plastefni mælist í þvagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að grennast í framhjáhlaupi

Margir stunda hlaup til að grennast, eða hafa a.m.k. í hyggju að gera slíkt. Ég geri ráð fyrir að markmiðið sé þá yfirleitt að ná af sér tilteknum kílóafjölda. Hlaupin virka vafalaust mjög vel sem grenningarmeðal, auk þess að hafa jákvæð áhrif á marga aðra heilsufarsþætti. Hins vegar grunar mig að til þess að ná varanlegum árangri í baráttunni við kílóin, sé farsælla að miða markmiðin við aðrar mælieiningar en kíló.

Ég held að fólk geti valið á milli tveggja valkosta þegar það byrjar að hlaupa til að grennast:

  1. Að setja sér markmið um fækkun kílóa
  2. Að setja sér markmið um árangur í hlaupum, mældan í metrum eða mínútum

Mig grunar að síðari valkosturinn sé notadrýgri, þ.e. að setja sér markmið um árangur í hlaupunum. Þetta getur verið markmið um að geta hlaupið að næsta ljósastaur, 3 km, 10 km, eða hvað sem er. Eins er hægt að setja sér markmið um að ljúka ákveðinni vegalengd á ákveðnum tíma. Þegar markmiðinu er náð, því að það gerist jú nánast í öllum tilvikum sé markmiðið á annað borð raunhæft, er svo sett nýtt markmið - um nýja vegalengd til að sigrast á, eða hvað það nú er.

Þessi aðferð, þ.e. að stefna smám saman að bættum árangri í hlaupunum í stað þess að einbeita sér að fækkun kílóa, er að mínu mati mun jákvæðari en fyrri valkosturinn, þar sem einblínt er á kílóin allan tímann. Hér er nefnilega stefnt að einhverju sem er jákvætt og skemmtilegt. Hitt, þ.e.a.s. þyngdartapið, fylgir svo nánast óhjákvæmilega sem jákvæð aukaverkun.

Munurinn á þessum tveimur valkostum liggur kannski ekki í augum uppi, en hann felst einfaldlega í sálrænu áhrifunum. Að einhverju leyti snýst þetta um það að ákveða að maður sé í sókn en ekki í vörn. Sú tilfinning að maður sé í sókn hlýtur að veita manni mun meiri ánægju en varnarbaráttan. Og ánægjan er lykillinn að því að maður nenni að halda þessu áfram. Það er endalaust hægt að setja sér ný markmið - og gleðjast yfir hverju þeirra sem náð er! Hitt kemur svo bara að sjálfu sér, ekki strax heldur smám saman. 

Sem sagt: Ekki hlaupa til að grennast. Hlaupið til að finna framfarirnar og upplifa betri líðan. Hitt kemur þá af sjálfu sér. Munið bara að markmiðin þurfa að vera raunhæf. Og ef ökklarnir, hnén eða mjaðmirnar byrja að kvarta, þá er það mjög líklega vegna þess að þið hafið gert of mikið of fljótt.

Ég vil taka fram, að ég er ekki fagmaður á þessu sviði, heldur byggi ég þessi skrif á eigin hugmyndum og hlaupareynslu.


Skemmtileg bók á fjallatindum

FjallatindÁ dögunum kom út skemmtileg bók hjá Bókaútgáfunni Hólum. Þetta er bókin Á fjallatindum eftir Bjarna E. Guðleifsson, en þar segir hann í máli og myndum frá því uppátæki sínu að ganga á hæstu fjöll í öllum sýslum landsins.

Í tilefni af útgáfu bókarinnar verður efnt til göngu á Keili á morgun, eins og sjá má auglýst í Mogganum og víðar, þ.á.m. á heimasíðu Eymundson. Ég hvet allt áhugafólk um göngu, útivist, Ísland og góðan félagsskap til að skella sér í þá göngu.

Það hefur auðvitað engin áhrif á viðhorf mín til bókarinnar að þar eru bróðir minn og frændi á aðalaukahlutverkunum. Smile Þetta er bara skemmtileg bók með fínum myndum og léttri frásögn. Og svo hefur fólk líka bara gott af því að vera úti í náttúrunni. Bókin hvetur til þess, og þó ekki væri annað, þá er það nóg ástæða til að mæla með henni.


Er erfitt að hlaupa móti vindi?

Í dag hljóp ég nokkra kílómetra móti vindi. Til að vera nú alveg heiðarlegur er rétt að taka fram að þar sem ég hljóp að heiman og aftur heim, eins og ég er vanur að gera, þá hljóp ég náttúrulega álíka langt undan vindi líka. Þessi athyglisverða en þó mjög hversdagslega lífsreynsla, vekur upp þá spurningu hvort það sé erfiðara að hlaupa móti vindi, heldur en að hlaupa án mótvinds. Svarið fer hér á eftir:

Það er ekkert erfiðara að hlaupa móti vindi. Það er bara seinlegra. Á sama hátt er ekkert erfiðara að hlaupa upp brekkur en á jafnsléttu. Það er bara seinlegra. Og allt er þetta spurning um hugarástand!
Smile


Rokið í rjúpnatalningu

Í morgun fór ég í árlegan rjúpnatalningarleiðangur vestur á Skógarströnd við þriðja mann. Sá enga rjúpu, en hins vegar sáu sjónarvottar tvær rjúpur fljúga yfir hausinn á mér á meðan ég var að brjótast um í birkikjarrinu sem vex þarna eins og óður arfi. Ekki bætti úr skák að í morgun var mjög hvasst á þessu svæði, en sem betur fer var úrhellisrigning næturinnar liðin hjá þegar talning hófst.

Þessi rjúpnatalning er mikilvægur hluti af hávísindalegri langtímarannsókn á vegum Náttúrufræðistofnunar. Ég er síður en svo nokkur frumkvöðull í þessum talningamálum, heldur fæ ég bara að fljóta með frændum mínum, þeim Sigurkarli og Sigurkarli. Við göngum alltaf sömu leið á sama svæði á hverju vori. Ég er ágætur í að ganga, en hins vegar tek ég yfirleitt ekki eftir neinu, því að ég lít á það sem skyldu mína að gera ferðina upp í bundnu máli þegar við komum í hús, og það þýðir auðvitað ekkert að reyna að yrkja og glápa á einhverja fugla samtímis.

Málið snýst sem sagt um tvennt. Í fyrsta lagi:

Í rokinu ráfa' eftir handriti.
Ég er rjúpnatalningarbanditi.
Í þröngskornu fleeci
ég þvælist í hrísi
og þekkist á rispum í andliti.

Og í annan stað:

Rjúp09 024web
Þetta eru nú allar rjúpurnar sem ég sá í morgun.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Umhverfisstjórnunar-fræðingur í Borgarnesi
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband