Færsluflokkur: Bloggar
29.9.2008 | 14:59
Ég kýs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.9.2008 | 10:16
Ríkismaraþon
Ég er nú barasta að velta því fyrir mér, í beinu framhaldi af síðustu færslu, hvort Glitnismaraþonin í Reykjavík og Osló verði þá Ríkismaraþon á næsta ári. Eða er ríkið kannski bara að leggja af stað í sitt eigið maraþon, sem ekki sér fyrir endann á? Eða er þetta bara spretthlaup, þannig að eftir stutta stund verði hægt að varpa mæðinni og þurrka svitann? Eða er þetta kannski alls ekki spurning um spretthörku eða úthald, heldur um nýja uppskrift að hamingju, sem felst í því að komast yfir eignir, kreista úr þeim safann og leyfa ríkinu að sjá um afganginn, svo að hægt sé að byggja hann upp að nýju til að selja öðrum hann fyrir lítið, til að þeir geti aftur kreist safann og leyft ríkinu aftur að sjá um afganginn, svo að hægt sé............?
Þegar ég var í menntaskóla (fyrir ákaflega örfáum árum) var sett þar upp skemmtilegt leikrit, sem ég man ekki lengur hvað hét. Þar í var skemmtilegt lag og skemmtilegur texti, sem ég held að ég muni enn brot úr - eitthvað á þessa leið:
Nú skal gera góða veislu,
efla sam- og einkaneyslu,
eta og drekka eins og hver torgar,
því að ríkið brúsann borgar.Ergo: Betlið, eyðið svíkið!
Allan kostnað greiðir ríkið!
Ég veit ekkert af hverju þetta rifjaðist upp núna. En ef einhver man eftir þessum texta og veit hver er höfundur hans, þætti mér gaman að frétta af því.
![]() |
Ríkið eignast 75% í Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2008 | 09:15
Mikil hlaupahelgi afstaðin
Mér finnst skemmtilegt að Mette Marit skyldi hafa skellt sér í Glitnismaraþonið í Osló. En tímann hennar vantar í fréttina. Hún hljóp sem sagt á 1:19:04 mín og varð í 52. sæti í flokki kvenna 35-39 ára.
Krónprinsessan var nú ekki aldeilis ein á hlaupum um helgina! Hæst ber auðvitað lengsta hlaup Íslandssögunnar, nefnilega hlaup Gunnlaugs Júlíussonar í fótspor Pheidippidesar milli Aþenu og Spörtu. Þetta eru heilir 246 km, sem Gunnlaugar lagði að baki á rúmum 34 klukkustundum (34:12:17 klst). Þetta er auðvitað algjörlega einstakt!
Svo má nú ekki gleyma Íslendingunum í Berlínarmaraþoninu í gær. Ef mér skjátlast ekki komu hvorki fleiri né færri en 58 Íslendingar í mark í því hlaupi, þó að enginn þeirra kæmist reyndar með tærnar þar sem Haile hafði hælana. En mikið hlýtur nú að hafa verið gaman að taka þátt í hlaupi þar sem heimsmetið var slegið. Fljótasti Íslendingurinn í Berlín var Óskar Jakobsson skíðagöngumaður, á 3:01:40 klst. Næstur var svo Jóhann Karlsson á 3:06:03 klst, sem væri nú kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þá sök að maðurinn fæddist árið 1948! Þetta var sem sagt Íslandsmet í flokki 60 ára og eldri. Ég segi nú bara eins og Megas: Og hugsa með mér, vá, svona vil ég verða þegar ég er orðinn stór!
Sjálfur hljóp ég líka um helgina, nánar tiltekið um fjöll og dali í Bitrufirði. Smalaði nokkrum kindum. Það var fínt, sko.
![]() |
Krónprinsessa í Glitnishlaupi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2008 | 10:39
Ný grein: Fróðleiksferðamennska?
Á dögunum fékk ég athyglisverðan tölvupóst frá ungri konu í Svíþjóð, þar sem hún var að leita eftir góðum ráðum við allsérstæðu vandamáli sem plagar sænsk sveitarfélög og opinberar stofnanir. Svíar hafa nefnilega tekið svo afgerandi forystu í ýmsum þáttum umhverfismála að þangað streyma heilu sendinefndirnar víða að til að fræðast um það hvernig Svíar leysi hin ýmsu viðfangsefni, svo sem sjálfbært skipulag borga og bæja, stjórnun úrgangsmála og uppbyggingu sjálfbærra orkukerfa. Nú er svo komið að margir opinberir starfsmenn hafa ekki undan að taka við gestum og útskýra fyrir þeim hvernig hin ýmsu umhverfismál eru leyst í viðkomandi stofnun. Í mörgum tilfellum er þarna um að ræða hreina viðbót við daglega vinnu þessa fólks, þannig að þessar annars ánægjulegu heimsóknir eru orðnar býsna íþyngjandi.
Ég hef ekki þurft að glíma mikið við þetta sérstæða vandamál og á því ekki mörg góð ráð fyrir þessa ungu konu. Hins vegar sé ég auðvitað ýmis tækifæri í vandamálinu og held að Svíar ættu sem best að geta nýtt sér þau. En ástæðan fyrir því að ég skrifa þessa bloggfærslu er ekki umhyggja fyrir Svíum, þó að ég líti vissulega á þá sem frændur mína og vini. Ég er miklu fremur að minna á þau tækifæri sem liggja í því bæði fyrir þjóðir og einstök svæði, að vera í fararbroddi á einhverju sviði.
Ég veit að nú þegar kemur slatti af fólki til Íslands á hverju ári til að fræðast um nýtingu jarðvarma og fleira þess háttar. Ég sé hins vegar fyrir mér að ákveðnari stefnumótun og meiri kjarkur til að nýta Ísland sem tilraunastöð fyrir verkefni í anda sjálfbærrar þróunar, myndu skapa veruleg tækifæri í ferðaþjónustu! En þá þarf maður náttúrulega líka að vita hvernig maður ætlar að bregðast við, þannig að þessi nýja tegund ferðamanna skapi gestgjöfunum og þjóðarbúinu tekjur en ekki bara "some headache to [...] civil servants", svo ég stelist nú til að vitna orðrétt í umræddan tölvupóst.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.9.2008 | 20:14
Búskaparhorfur á Mýrum
Örlítill viðauki við fyrri skrif mín um breytingar á eignarhaldi í Sparisjóði Mýrasýslu:
Mýrarnar fundust mér flatar
og forblautar meðan ég sat þar,
hvergi stuðning að fá.
En nú stóla ég á
Stofnlánadeildina' í Qatar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
23.9.2008 | 13:46
Er norræn samkennd að hverfa?
Ég er algjörlega sammála menningar- og menntanefnd Norðurlandaráðs um að nú séu síðustu forvöð að bjarga hinu norræna tungumálasamfélagi. Ég veit að margir Íslendingar vilja gjarnan hafa samskipti við annað norrænt fólk á ensku, frekar en á einhverju norrænu máli (norsku, sænsku, dönsku eða einhverri blöndu af þessu þrennu). Þetta er skiljanlegt eins og málum er háttað, en ég held samt að fólk átti sig almennt ekkert á því hvað er í húfi. Tungumál er nefnilega ekki bara tungumál. Það er flestu öðru fremur þessi skyldleiki tungumálanna sem gerir norrænt samstarf að því sem það er. Um leið og við gefumst upp á því að viðhalda getunni til að hafa samskipti á norrænum málum, er líklegt að norrænt samstarf líði undir lok, ekki skyndilega heldur smátt og smátt. Menn munu sem sagt vakna upp við það einn daginn að það sem tengdi okkur saman, hvað sem það nú annars var, sé ekki lengur til staðar.
Nú eru síðustu forvöð að bretta upp ermarnar. Það þurfa norrænu menntamálaráðherrarnir að gera. Það þarf að útrýma leiðindunum úr norrænu tungumálanámi og hrinda í framkvæmd hinni metnaðarfullu stefnu um norræna tungumálakunnáttu, sem sagt norrænu tungumálayfirlýsingunni frá 2006.
Látum ekki um okkur spyrjast að "vi har lagt en plan, men husker ikke hvor vi lagt den", eins og norskur kunningi minn orðaði það á dögunum!
PS: Það er ágæt æfing í norrænunni að lesa frétt um þetta sama mál á heimasíðu Norðurlandaráðs.
![]() |
Hörð gagnrýni á norræna menntamálaráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.9.2008 | 14:12
Sparisjóðurinn kominn á þurrt?
![]() |
Sjeik kaupir 5% í Kaupþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.9.2008 | 18:43
Ráðstefnurotta
Í þessari viku breyttist ég í ráðstefnurottu. Ráðstefnurotta er svona manndýr sem er ábúðarfullt eða jafnvel gáfulegt á svipinn og sækir hverja ráðstefnuna á fætur annarri til að geta haldið áfram að vera mikilvægt án þess að þurfa að mæta í vinnuna. Ef mig misminnir ekki var það Guðbergur Bergsson sem lýsti þessu hugtaki fyrstur manna fyrir framan fullan sal af ráðstefnugestum á einhverri bókmenntaráðstefnu fyrir afar mörgum árum.
Ég ætlaði aldrei að verða ráðstefnurotta. Það gerðist bara. Fyrst var ég á norrænni sjálfbærniráðstefnu í Óðinsvéum á mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Gerði ekkert gagn þar, en hélt gáfusvipnum alveg sæmilega. Var svo í Reykjavík í gær og í dag á ráðstefnu um rafmagnsbíla og fleira þvíumlíkt. Gerði ekkert gagn þar heldur, en fannst gaman að hlusta á suma framsögumennina, sérstaklega ævintýramanninn Bertrand Piccard, sem ætlar að verða fyrstur til að fljúga í kringum Jörðina á sólarorkuknúinni flugvél. Árið 1999 varð hann fyrstur manna til að fljúga kringum Jörðina í loftbelg, án millilendingar. Meðal margs annars sem hann sagði var þetta: Hvernig skiptir maður um viðhorf í loftbelg? Jú, maður verður að losa sig við eitthvað af ballestinni. Allt í lagi að íhuga þetta aðeins.
Kannski er allt þetta ráðstefnustand bara gagnlegt eftir allt saman. Samt rifjast stundum upp fyrir mér veggspjald sem ég fann einhvers staðar fyrir nokkrum árum. Best að leyfa ykkur að sjá það líka, þó að ég sé löngu búinn að gleyma hvaðan það kom.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2008 | 23:17
Afmælishlaup á Gaflfellsheiði
Í dag hefði pabbi minn, hann Gísli í Gröf, orðið 100 ára. Í tilefni af því hljóp ég við fjórða mann yfir Gaflfellsheiði; frá Ljárskógum í Dölum að Brunngili í Bitrufirði og áfram niður að fjarðarbotninum. Pabbi fæddist nefnilega á Brunngili og hljóp mörg fyrstu skrefin sín í Brunngilsdal. Um leið var þetta 7. fjallvegahlaupið mitt á árinu og það tíunda alls, þannig að nú á ég bara eftir að nýta mér 40 af þeim 50 fjallvegum sem ég gaf mér í afmælisgjöf í fyrra.
Hlaupaleið dagsins var löng, nánar tiltekið 38,15 km. Það hefði svo sem ekki verið svo ýkja mikið, nema vegna þess að norðanáttin blés í fangið á okkur allan tímann, með vindhraða upp á 10-15 m/sek, og uppi á heiðinni var líka alldimm þoka og súld, en síðan rigning. Þess vegna var þetta með erfiðustu hlaupum.
Við fjórða mann, sagði ég. Við vorum reyndar fleiri, því að Rögnvaldur bróðir minn, bóndi í Gröf, stikaði líka leiðina frá smalakofa Laxdæla sunnanvert í heiðinni og norður að Brunngili. Það voru rúmir 17 km. Þar að auki gengu eldri systkini mín, Björg og Hallgrímur, 14 km leið frá Brunngili út að Hvítarhlíð og þaðan fram að Gröf, en á þessum þremur bæjum ól pabbi allan sinn aldur, öll sín rúmlega 90 ár, að frátöldum þeim tímum sem hann var fjarvistum við smíðar.
Með mér í för alla leiðina voru tveir bændur af Ströndum og einn sálfræðingur frá Akureyri, nánar tiltekið skíðagöngukapparnir Birkir Stefánsson í Tröllatungu og Ragnar Bragason á Heydalsá - og maraþonhlauparinn Arnfríður Kjartansdóttir á Akureyri.
Við afleggjarann að Ljárskógum kl. 11.15 í morgun. Norðanvindurinn var strax farinn að gefa vísbendingar um hvað hann ætlaði sér. F.v.: Rögnvaldur, Arnfríður, Ragnar, Birkir, Stefán. (Sigríður Drífa Þórólfsdóttir tók myndina)
Frá Ljárskógum að Ljárskógaseli er greiðfær vegur og þaðan jeppaslóð framundir leitarkofa Laxdæla á Hvanneyrum. Að kofanum eru um 17,3 km neðan af aðalveginum við Ljárskóga. Þessi spölur var viðráðanlegur og umhverfið fagurt, áin Fáskrúð á vinstri hönd og hinum megin grónir lyngmóar svo langt sem augað eygði. Svo bar margt fleira fyrir augu.
Birkir, Arnfríður og Ragnar á fullri ferð upp með Fáskrúð, á leið upp í Ljárskógasel.
Í tilefni dagsins hafði einn veiðistaðurinn í ánni Fáskrúð fengið þetta skemmtilega nafn!
Hér má sjá bæjarrústirnar í Ljárskógaseli í baksýn. Þar sleit Jóhannes úr Kötlum barnsskónum.
Á sama stað, næstum sama fólk.
Teygjuæfingar við leitarmannakofann á Hvanneyrum.
Frá Hvanneyrum er enginn vegarslóði lengra inn í heiðina. Þar gerðist því undirlagið erfiðara til hlaupa, og norðanvindurinn sló ekki slöku við. Næstu 12 kílómetrar voru eiginlega bara virkilega erfiðir og meira um göngu en hlaup. Eftir því sem ofar dró þéttist líka þokan. Þá kom GPS-hlaupaúrið í góðar þarfir því annars hefði þessi hluti leiðarinnar verið torrataður.
Leitarmannakofinn að baki og búið að vaða Stikukvísl. Erfiðasti hluti leiðarinnar framundan. Fríða í forystu og Birkir og Ragnar í humátt á eftir.
Loks voru þessir erfiðustu 12 kílómetrar að baki, þokunni aðeins tekið að létta og við allt í einu komin fram á brún Heiðagilsins, sem leiddi okkur auðveldlega niður brekkurnar niður í Brunngilsdal. Þar náðum við Rögnvaldi göngumanni og vorum fegin að komast niður á jafnsléttu. Vorum sammála um að heiðin væri miklu hærri að sunnanverðu en að norðanverðu. Neðar í dalnum lá leiðin um hlaðið á eyðibýlinu Brunngili á æskuslóðum pabba. Þar stendur enn listilega hlaðinn grjótgarður eftir Jón Jónsson langafa minn, töluvert mannvirki sem staðist hefur veður og vinda í ein 130 ár eða svo. Útveggir íbúðarhússins á Brunngili standa uppi, en það var byggt um 1930, eftir að pabbi hleypti heimdraganum og gerðist lærisveinn hjá Guðjóni snikkara á Hólmavík.
Þreyttir hlauparar á hlaðinu á Brunngili.
Þegar við vorum komin niður að Brunngili var ekkert eftir nema klára hlaupið, bara svona mest formsatriði eiginlega, enda ekki nema 4,5 km niður á veg. Þegar þangað var komið sýndi mælirinn sem sagt 38,15 km. Þetta hafði tekið tímann sinn í mótvindinum, nefnilega 5:40 klst. og meðalhraðinn 6,73 km/klst. Ekki við meiru að búast við þessar aðstæður. En mikið er nú gaman að takast á við áskoranir og sigrast á þeim, þó að maður sé blautur og vindbarinn þegar upp er staðið. Eiginlega er bara betra að vera svolítið lerkaður, því að þá finnur maður að maður hefur lagt eitthvað á sig og staðist það.
Við botn Bitrufjarðar að hlaupi loknu. Þreyta og gleði skín úr hverju andliti.
Það er ekki hægt að botna þennan pistil án þess að minnast á þær frábæru veitingar sem biðu okkar í eldhúsinu í Gröf þegar þangað var komið. Takk Arnheiður!
"Sjáið fjallið, þarna fór ég". Svona lítur hlaupaleið dagsins út á Google Earth, úr Hvammsfirði í Dölum norður að Brunngili. Arnfríður á allan heiðurinn af þessari mynd, í samvinnu við Google sjálfan náttúrulega.
Bloggar | Breytt 29.9.2008 kl. 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.9.2008 | 15:08
Að bora sér leið inn í hamingjuna
Ég hef tiltölulega litlar áhyggjur af yfirlýsingum Söru Palin um brúarbyggingar í Alaska. Ég hef hins vegar snöggtum meiri áhyggjur af áherslum hennar í umhverfis- og orkumálum, sem virðast vera enn íhaldssamari og öfgafyllri en áherslur núverandi ríkisstjórnar Bandaríkjanna. Um þessar áherslur var m.a. fjallað í ritstjórnargrein í New York Times sl. sunnudag. Þar er stefna Söru í orkumálunum dregin saman á einfaldan hátt í eina setningu: Bora hér, bora þar, bora núna. Þar er sömuleiðis bent á að Sarah
- myndi opna náttúruverndarsvæðin í Alaska fyrir olíuborun á augabragði, þó að John McCain sé enn mótfallinn því,
- hafi farið í mál við Bushstjórnina fyrir að hafa sett hvítabirni á lista yfir dýr í útrýmingarhættu, þar sem þetta gæti spillt fyrir olíuleit á svæðinu og
- dragi í efa að mannkynið eigi þátt í hlýnun jarðar.
Reyndar gengur höfundur ritstjórnargreinarinnar svo langt að segja að viðhorf Söru séu sláandi laus við tengsl við raunveruleikann, og sem slík jafnvel enn fjarstæðukenndari en sú ákvörðun John McCain að velja hana sem varaforsetaefni.
Í grein New York Times er líka látið að því liggja að sá John McCain, sem nú er í framboði, sé ekki alveg sami John McCain og sá sem fór sínar eigin leiðir sem öldungardeildarþingmaður, oft í trássi við vilja flokksbræðra sinna. Hann hafi með öðrum orðum borið töluvert af leið upp á síðkastið til að þóknast sínu fólki, og nú sé aukin olíuframleiðsla hornsteinninn í stefnu hans í orkumálum. En þarna er náttúrulega verið að stinga höfðinu í sandinn og beina athygli almennings frá hinum óumflýjanlega veruleika: Þjóð sem notar fjórðung af olíu heimsins en ræður aðeins yfir 3% af olíuauðlindunum, getur ekki borað sér leið inn í hamingjuna, svo notuð séu nokkurn veginn óbreytt orð greinarhöfundar.
Mér er nokkuð sama þótt Sara sé kannski meira og minna fylgjandi öllu því sem McCain leggst gegn, eins og Barack Obama orðar það. Mér finnst verra ef McCain snýst meira og meira á sveif með Söru, eins og raunin virðist vera.
![]() |
Yfirlýsingar Palin gagnrýndar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Gamla bloggið
- Gamla bloggið Bloggfærslurnar mínar 11/1 2007 - 29/2 2008
Síðurnar mínar
- Fjallvegahlaup Bráðabirgðasíða um Stóra Fjallvegahlaupaverkefnið :-)
- Olíuhreinsistöð Umhverfisþættir í rekstri olíuhreinsistöðva
Börnin mín (sum)
- Keli Frumburðurinn
- Jóhanna - myndir Myndirnar hennar Jóhönnu á Flickr
Vinir og ættingjar
- Hörpumyndir Aðallega Ragnar Ingi auðvitað
Frjálsar og hlaup
- FRÍ Frjálsíþróttasamband Íslands
- Hlaup.is Hlaupasíðan
- Hlaupadagbókin Segir ALLA söguna
- Sænska FRÍ Sænska frjálsíþróttasambandið
- Alþjðafrlsítrasambndð Heimasíða Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, IAAF
Umhverfismálin
- Orð dagsins Af vettvangi Staðardagskrár 21
- UMÍS ehf. Environice Fyrirtækið mitt :-)
- Svanurinn í Noregi Svanur eins og svanir eiga að vera
- Miljø og sundhed Informationscenter for miljø og sundhed í Danmörku
- Landvernd Landvernd
- Náttúran.is Verðandi umhverfisvefur númer eitt