Færsluflokkur: Bloggar
29.8.2008 | 21:32
Í fýlu út í RÚV
Ég er í fýlu út í RÚV ohf. Hvern haldiði eiginlega að langi til að horfa á bíómynd á aldur við mig um skólastrák sem kemst í hann krappan við að passa uppátækjasaman hund - eða aðra lítið nýrri um hnefaleikakappa sem hjálpar yfirvöldum að finna stolna herþotu? EKKI MIG alla vega! Það hefur einhver gleymt að segja Páli Magnússyni frá því að það var gullmót í frjálsum í Zürich í kvöld! Þar var á ferð góður hópur af fólki, sem hefði alveg getað dregið mig að skjánum vandræðalaust!
Kannski Páll hafi frétt af ummælum hins stolta mótshaldara Patrick Magyar, sem sagðist sko alveg hafa séð ódýrari 100 m hlaup, en það sem menn ættu von á í Zürich á föstudagskvöld. Svo hefði ég líka alveg vilja sjá 800 m hlaup kvenna; síðasta keppnishlaup Maríu Mútólu og jafnvel heimsmetstilraun hjá þessari 18 ára stúlku:
Og Andrés Þorkelsson er nú líka frekar flottur:
Myndirnar eru allar fengnar að láni á heimasíðu Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, http://www.iaaf.org.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2008 | 08:19
Skemmdarverk að skoða hlutina í samhengi?
Ég er frekar undrandi á Guðna að tala um skemmdarverk í þessu sambandi. Ákvörðun Þórunnar snýst um að áhrif framkvæmda sem tengjast fyrirhuguðu álveri verði skoðuð í samhengi, enda hlýtur slíkt að vera öllum til góðs þegar upp er staðið. Annars hef ég engu við það að bæta sem ég skrifaði um málið 13. ágúst sl.
![]() |
Kreppa af völdum ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.8.2008 | 10:18
Munu urðunarstaðir breytast í námur?
Í Orðum dagsins í dag kemur fram, að sjónir manna séu nú í auknum mæli farnar að beinast að urðunarstöðum sem hagkvæmum námum fyrir orku- og hráefnavinnslu. Tækifæri eru einkum talin geta legið í gríðarlegu magni plastefna sem víða liggja grafin, en verð á hágæðaplasti, svo sem HDPE, hefur tvöfaldast á einu ári í takt við aukna eftirspurn og hækkandi olíuverð. Svipaða sögu er reyndar að segja um málma, sem víða hafa verið urðaðir í stórum stíl. Sérfræðingar í úrgangsmálum munu ræða þessa möguleika á ráðstefnu í London í október, sem kölluð hefur verið fyrsta urðunarnámuráðstefnan.
OECD hefur áætlað að árið 2030 verði magn heimilisúrgangs á heimsvísu komið í um þrjá milljarða tonna á ári, en magnið var um 1,6 milljarður tonna árið 2005, sem samsvarar um 1 kg á mann á dag. Víða er um helmingur þessa magns urðaður, en OECD gerir ráð fyrir að það hlutfall lækki í um 40% fyrir árið 2030 vegna aukinnar áherslu á endurvinnslu og sorpbrennslu til orkuframleiðslu.
Talið er að á nú þegar liggi um 200 milljónir tonna af plasti grafnar í breskum urðunarstöðum. Verðmæti þessa plasts gæti slagað hátt í 60 milljarða sterlingspunda, eða um 9.200 milljarða íslenskra króna, miðað við plastverð í heiminum í dag. Allt þetta plast væri tæknilega séð hægt að endurvinna eða breyta í vökvakennt eldsneyti. Peter nokkur Mills, framkvæmdastjóri úrgangs- og endurvinnslufyrirtækisins New Earth Solutions, hefur haft þau orð um tækifærin sem liggja í gröfnu plasti, að þegar plastið sé einu sinni komið á urðunarstaðinn, þá sitji það eiginlega bara þar og geri ekki neitt - og þar sé hægt að ganga að því og grípa það þegar á þarf að halda.
Þessi áhugi manna á þeim auðlindum sem liggja grafnar í sorphaugum heimsins á sér öðru fremur rætur í hækkandi verði á olíu og hráefnum eins og fyrr segir, en fjölgun jarðarbúa kemur þar að sjálfsögðu einnig við sögu. Gert er ráð fyrir að jarðarbúar gætu verið orðnir um 9 milljarðar árið 2020, en talan er nú einhvers staðar á 7. milljarðinum. Þessi öra fjölgun, samfara örri efnahagsþróun í fjölmennustu ríkjum heims, mun augljóslega leiða til mjög aukinnar eftirspurnar og þar með áframhaldandi verðhækkana á olíu og hráefnum, umfram það sem þegar er komið fram.
Sem fyrr segir liggja tækifærin þó ekki eingöngu í gröfnu plasti, heldur einnig í öðrum hráefnum, svo sem málmum. Þessi tækifæri hef ég reyndar áður minnst á í bloggfærslunni Litlar gleymdar járnnámur í nafni fegurðarinnar, sem birtist á gömlu bloggsíðunni minni 5. október 2007.
Verðmætin sem liggja í hverjum urðunarstað um sig eru mismunandi eftir aldri og eðli staðanna og þeirri menningu sem þeir eru sprottnir úr. Þannig liggur mikið af byggingarúrgangi grafið í sænskum urðunarstöðum frá 7. áratug síðustu aldar, því að um þær mundir var mikið byggt þar í landi. Annars staðar eru málmar mest áberandi og enn annars staðar er plastið í meirihluta. Svo geta menn auðvitað líka búist við að finna 60 ára gömul dagblöð innan um innyfli úr sauðfé, sem legið hafa óskemmd frá því á dögum síðari heimsstyrjaldarinnar. Því er eflaust ráðlegt að kynna sér söguna áður en námuvinnslan hefst af fullum krafti.
Ég get vel tekið undir með Chris Dow hjá Closed Loop London. Hann dregur verðmætin í urðunarstöðunum ekkert í efa, en er jafnframt argur yfir því að menn skuli vera tilbúnir að leggja milljónir sterlingspunda í fjárfestingar til að vinna verðmæti úr urðunarstöðum á meðan þeir urða enn sífellt meira plast á nýjum urðunarstöðum.
Þessi pistill er að mestu leyti byggður á þeirri frétt PlanetArk/Reuter, sem vísað er til í Orðum dagsins í dag. Mér finnst við hæfi að ljúka pistlinum á þremur fallegum myndum sem ég hef tekið einhvers staðar á síðustu mánuðum og árum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2008 | 21:56
Ókeypis sjálfvirk líkamsrækt vanmetin
Ég held að sú líkamsrækt sem maður getur fengið í daglega lífinu án kostnaðar eða sérstakra tilfæringa sé stórlega vanmetin. Þá á ég einkum við þá líkamsrækt sem felst í því að ganga eða hjóla í og úr vinnu. Þeir sem gera þetta næstum daglega komast í ágætis form án þess að taka eiginlega eftir því. Auk þess örvar þessi iðja hugann á leið í vinnu og hreinsar hann á leiðinni til baka.
Líkamsrækt þarf ekki að vera aðskilin frá öðru í lífinu. Hún getur sem best verið hluti af því.
Kannski væri fólk duglegra að hjóla og ganga ef það þyrfti að borga fyrir það, kaupa mánaðarkort til að mega ganga, eða eitthvað í þá veru.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2008 | 17:01
LSD
Til eru tvær tegundir af LSD.
- Önnur tegundin er ofskynjunarlyfið lýsergíðsýrudíetýlamíð (Lysergic acid diethylamide).
- Hin tegundin er draumur sem verður svo stór að hann verður LangStærsti Draumurinn.
Þessar tvær tegundir af LSD eiga það sameiginlegt að þeim geta fylgt ofskynjanir, sem skapa mikla gleði og hættu í senn, og geta reyndar gert það að verkum að neytandinn verður ekki samur eftir að hann vaknar úr vímunni, ef hann þá vaknar.
Hér verður ekki rætt frekar um skaðsemi fyrri tegundarinnar, enda hafa henni oft verið gerð ítarleg skil á öðrum vettvangi. Sú tegund kom fyrst fram á sjónarsviðið 1938 og náði líklega einhvers konar hápunkti í lok 7. áratugs síðustu aldar. Síðarnefnda tegundin af LSD verður hins vegar gerð að umfjöllunarefni hér á eftir.
Almennt er talið hollt og nauðsynlegt að eiga sér drauma, hvort sem dagur er á eða nótt. Það er ekki fyrr en einhver draumur verður svo stór að hann ýtir öðrum draumum til hliðar, sem hættuástand skapast. Þá er draumurinn einmitt kominn á það stig að geta kallast LSD.
Tæplega er hægt að nefna neina eina ástæðu þess að draumur verður að LSD. Mikilvægur þáttur í því er þó þrá dreymandans eftir einhverju stærra, einhverju sem slær á grámósku hversdagsins og gefur fyrirheit um nýja tíma. Að því leyti er þessi gerð af LSD mjög svipuð hinni. Báðar snúast þær um leit að nýrri skynjun, sem er meiri og öðruvísi en sú sem skilningarvit neytandans eða dreymandans upplifa með venjulegum hætti.
Draumur sem er orðinn að LSD heltekur svo vitund þess sem dreymir, að honum fer að finnast allt annað léttvægt. Með öðrum orðum skapast ákveðið þráhyggjuástand. Aðrir draumar skjóta upp kollinum, en þeim er hafnað jafnóðum á þeim forsendum að þeir geti aldrei fært dreymandanum eins mikla sælu og LSD. Þetta getur komið sér mjög illa fyrir dreymandann, því að í þessum litlu draumum leynast oft farsælar lausnir á ýmsum þeim vandamálum sem að dreymandanum steðja. Í versta falli útrýmir LSD öllum þessum draumum og dreymandinn kemst í einhvers konar glýjukennt ástand þar sem aðeins eitt skiptir máli, fegurð hins smáa hverfur og fjölbreytileiki verður að blótsyrði.
Draumar vara ekki að eilífu. Að endingu rennur óhjákvæmilega upp sú stund að dreymandinn vaknar, þ.e.a.s. ef hann hefur ekki dáið í svefni. Þá er um tvo möguleika að ræða, hvort sem um venjulega draum er að ræða eða LSD. Annað hvort rætist draumurinn eða hann rætist ekki.
Venjulegur draumur sem rætist er dreymandanum yfirleitt til hagsbóta, bætir sem sagt stöðu hans eða líðan með einum eða öðrum hætti án aukaverkana. Venjulegur draumur sem rætist ekki er yfirleitt úr sögunni án þess að skaða dreymandann svo orð sé á gerandi. Venjulegur draumur er enda yfirleitt aðeins einn af mörgum slíkum og áhættan því ekki mikil þótt lítið verði úr. Dreymandinn er auk heldur opinn fyrir nýjum draumum þegar einum sleppir.
LSD sem rætist er dreymandanum líka til einhverra hagsbóta, en hefur undantekningarlaust verulegar aukaverkanir. Annars væri hann ekki LSD. Aukaverkanirnar geta tekið á sig ýmsar myndir og þær ganga undir ýmsum nöfnum. Meðal annars eru þær stundum kallaðar ruðningsáhrif, vegna þess að uppfylling LSD ryður úr vegi uppfyllingu smærri drauma, jafnvel frá öðrum dreymendum. Svo rammt getur kveðið að þessu, að uppfylling LSD ryðji úr vegi veruleika sem löngu er sprottinn upp úr gömlum draumum. Aukaverkanir geta líka birst í mjög lækkaðri Hackman vísitölu fyrir það svæði þar sem LSD var uppfylltur, en lág Hackman vísitala er vísbending um að atvinnulíf á svæðinu sé einhæfara en á einhverju stærra samanburðarsvæði, t.d. í landinu öllu.
LSD sem rætist ekki er afar skaðlegur fyrir dreymandann og þá sem gerðir dreymandans hafa helst áhrif á. Sem fyrr segir er LSD nefnilega þeirrar náttúru að hann útrýmir öðrum draumum, sem ella hefði sumir ræst. Þegar dreymandinn vaknar af LSD og áttar sig á að hann rætist ekki, er hann því í mun verri aðstöðu en þegar draumurinn hófst. Honum finnst hann hafa tapað nær öllu því sem máli skiptir og hefur hvorki burði né viljastyrk til að snúa sér að öðru fyrst um sinn. Hann hefur með öðrum orðum vaknað upp af vondum draumi og stendur eftir draumlaus, bæði búinn að tapa hluta af þeim veruleika sem hann lifði áður í og þeim smærri draumum sem áður vöktu honum von í brjósti.
Mörkin milli venjulegra drauma og LSD eru ekki alltaf skýr. Þess vegna er afar mikilvægt að átta sig tímanlega á því að tiltekinn draumur sé að nálgast það að verða LSD. Engin ein aðferð er örugg í því sambandi. Því er farsælast að beita ávallt varúðarreglunni, þ.e.a.s. að grípa strax til varnaraðgerða ef grunur vaknar um að draumurinn sé að nálgast þetta stig, jafnvel þótt ekki sé sannað að svo sé. Þau einkenni LSD sem lýst er hér að framan ættu að nýtast að einhverju marki sem aðvörunarljós hvað þetta varðar.
Rétt er að viðurkenna og undirstrika að vitanlega er ekki auðvelt að halda vöku sinni á meðan á draumum stendur. Því er enn brýnna en ella að fara með gát. Ef draumur nær að verða að LSD er ekki víst að neytandinn, eða í þessu tilfelli dreymandinn, verði nokkurn tímann samur.
Aths.: Rétt er að taka fram, að undirritaður er ekki upphafsmaður hugmyndarinnar um LangStærsta Drauminn. Þessi tegund af LSD hefur verið til umræðu a.m.k. frá því veturinn 1974-1975. Einnig er rétt að taka fram, að í þessum pistli er ekki vísað til einstakra drauma, heldur er einungis um almenn varnarorð að ræða. Hver sá, sem telur sig sjá hér líkindi við eigin draum á það við sjálfan sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2008 | 10:27
Að fanga augnablikið
Síðustu daga hafa sést margar skemmtilegar myndir frá Ólympíuleikunum í Peking. Rakst á þessa á netinu í morgun. Þarna finnst mér ljósmyndaranum (Vladimir Rys/Getty Images) hafa tekist einkar vel að fanga augnablikið. Hvað haldiði til dæmis að þessir tveir menn séu að segja eða hugsa á því andartaki sem myndin er tekin? Verst að myndin er varla nógu lýsandi fyrir atburði gærdagsins.
(http://en.beijing2008.cn/news/sports/headlines/handball/n214582177.shtml)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2008 | 10:21
Nokkur orð um silfur
Gallinn við flokkaíþróttir, já og útsláttarkeppni yfirleitt, er að sá sem fær silfurverðlaunin tapar ævinlega síðustu viðureigninni.
En: Til hamingju Ísland!
![]() |
Íslendingar taka við silfrinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.8.2008 | 20:26
Endanlegar hlaupatölur
Bara til að hafa þetta alveg á hreinu:
Þorkell 42:47 mín. 35. sæti af 787 körlum 20-39 ára,
64. sæti af 3.025 alls.
Ég 44:04 mín. 6. sæti af 170 körlum 50-59 ára,
85. sæti af 3.025 alls.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.8.2008 | 14:46
Markmiðið náðist ekki ;-(
Ég náði ekki því markmiði mínu í 10 km hlaupi Reykjavíkurmaraþonsins að hlaupa á betri tíma en 43:27 mín.
Tíminn minn í morgun var bara 44:04 mín, sem dugði í 84. sæti af 2.929 keppendum samkvæmt bráðabirgðaúrslitum á www.marathon.is. Held ég hafi verið í 6. sæti karla á sextugsaldri. Þetta eru náttúrulega gríðarleg vonbrigði og ljóst að ég verð að taka næstu daga í að fara yfir hvað fór úrskeiðis. Jæja, ég veit það svo sem alveg. Í fyrsta lagi fór ekkert úrskeiðis, ég leyfði mér bara að njóta hlaupsins og leit aldrei á klukkuna fyrr en á síðustu 100 metrunum. Og ég er náttúrulega bara glaður að geta enn hlaupið þessa vegalengd á ekki lengri tíma. Í öðru lagi hef ég einfaldlega ekki hlaupið nógu mikið síðari hluta sumars.
Þorkell frumburður var auðvitað langt á undan mér eins og venjulega. Hann hljóp á 42:47 mín og varð í 63. sæti af þessum sömu 2.929 keppendum. Hann hélt sem sagt uppi heiðri fjölskyldunnar.
Þetta var 15. 10 km keppnishlaupið mitt - og reyndar 5. besti tíminn frá upphafi, þrátt fyrir allt. Besta tímanum náði ég á innanfélagsmóti ÍR á Melavellinum sunnudaginn 6. október 1974, 36:54,8 mín. Eins og ég hef áður sagt hefur gengið illa að toppa það upp á síðkastið. Næstbesti tíminn náðist í Ármannshlaupinu 25. júlí 1996, 41:00 mín. Síðan koma 43:14 mín. í Ármannshlaupinu 29. júlí 2004, 43:42 mín í Brúarhlaupinu á Selfossi 3. september 2005 og svo 44:04 mín í dag.
Margt hefur breyst í hlaupunum síðan árið 1974. Það ár náðu samtals 11 Íslendingar þeim áfanga að hlaupa 10 km í keppni - og höfðu aldrei verið fleiri! (Ég var með 6. besta tímann). Nú gæti ég trúað að þeir væru um 2.000. Fjöldi hlaupara í morgun gefur einhverja vísbendingu, en eins og fram hefur komið voru þeir u.þ.b. 2.929. Þar af voru auðvitað allmargir útlendingar, en á móti kemur að margir Íslendingar hlaupa þessa vegalend annars staðar en í Reykjavíkurmaraþoni. Mér sýnist þannig talan 2.000 hljóta að vera nærri lagi. Þetta finnst mér skemmtileg þróun!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.8.2008 | 09:07
Áheitahlaup á laugardag
Eins og landsmönnum er kunnugt ætla ég að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardaginn. Ætlaði upphaflega töluvert lengri vegalengd, en æfingamagn sumarsins gefur tæplega tilefni til þess. Því ákvað ég að láta 10 km duga, enda gefur það líka tækifæri til að ljúka ákveðnu verki. Ég þarf nefnilega að hlaupa 10 km á betri tíma en 43:27 mín við fyrstu hentugleika.
Forsaga málsins er sú, að í fyrra hitti ég Pétur Pétursson, vin minn, Strandamann og fyrrum landsliðsmann í þrístökki, á förnum vegi, nánar tiltekið á Djúpvegi skammt frá Hólmavík. Við þetta tækifæri benti hann mér á að hann hefði hlaupið 10 km á 43:27 mín eftir fimmtugt og lét að því liggja að ég hlyti nú að geta gert betur á nýfengnum sextugsaldri. Það er því ljóst að ég verð ekki í rónni fyrr en þessu markmiði er náð.
Reyndar á ég miklu betri tíma en 43:27 mín. Ég hef sko hlaupið 10 km á 36:54,8 mín, en það var þegar ég var 17 ára, og af einhverjum ástæðum hefur mér gengið illa að nálgast þann tíma síðustu árin. Núna er 43:27 raunhæft markmið, sem ég tel mig eiga um 50% möguleika á að ná á laugardaginn.
Hlaupið á laugardag er áheitahlaup. Þeir sem vilja heita á mig eða aðra hlaupara, t.d. Þorkel son minn, sem á vel að merkja best 39:32 mín í 10 km, geta gert það með einföldum hætti með því að fara inn á heimasíðu Reykjavíkurmaraþonsins, smella þar á tengilinn Heita á hlaupara og fylgja þeim leiðbeiningum sem þar birtast. Féð sem við feðgarnir söfnum með þessum hætti rennur til FSMA, félags aðstandenda og einstaklinga með SMA-sjúkdóminn (Spinal Muscular Atrophy) á Íslandi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Gamla bloggið
- Gamla bloggið Bloggfærslurnar mínar 11/1 2007 - 29/2 2008
Síðurnar mínar
- Fjallvegahlaup Bráðabirgðasíða um Stóra Fjallvegahlaupaverkefnið :-)
- Olíuhreinsistöð Umhverfisþættir í rekstri olíuhreinsistöðva
Börnin mín (sum)
- Keli Frumburðurinn
- Jóhanna - myndir Myndirnar hennar Jóhönnu á Flickr
Vinir og ættingjar
- Hörpumyndir Aðallega Ragnar Ingi auðvitað
Frjálsar og hlaup
- FRÍ Frjálsíþróttasamband Íslands
- Hlaup.is Hlaupasíðan
- Hlaupadagbókin Segir ALLA söguna
- Sænska FRÍ Sænska frjálsíþróttasambandið
- Alþjðafrlsítrasambndð Heimasíða Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, IAAF
Umhverfismálin
- Orð dagsins Af vettvangi Staðardagskrár 21
- UMÍS ehf. Environice Fyrirtækið mitt :-)
- Svanurinn í Noregi Svanur eins og svanir eiga að vera
- Miljø og sundhed Informationscenter for miljø og sundhed í Danmörku
- Landvernd Landvernd
- Náttúran.is Verðandi umhverfisvefur númer eitt
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 145509
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar